Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 69

Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 69
Augnskanni hjá Islenskri erföagreiningu. Mörgfyrirtœki hafa tekið upp notkun augnskanna í stað aðgangskorta, þ.m.t. World Class. Hvað með sjúkrahúsin? Spítalar eru sérstakir að því leytinu til að þar er ótrúlegur fjöldi starfsfólks að vinnu - á vöktum - og þar að auki stanslaus straumur gesta. Starfsmenn eru með passa sem gefa til kynna hverjir þeir eru og hvar þeim ber að vera. Það er lítið gert af því að „tékka“ á þessu og má í raun segja að hver sem er geti valsað um stóran hluta sjúkrahúsa að vild. I ljósi upplýsingaleyndar um sjúklinga (að ekki sé talað um hefðbundnar glæpamyndir þar sem sjúklingar eru hundeltir af glæpamönnum sem vilja þeim illt) er ljóst að mun betur má gera þarna. Að vísu eru tölvur og gögn oft í lokuðum herbergjum en alls ekki alltaf og það er tiltölulega lítið mál að komast inn á staði sem eiga að vera lokaðir al- menningi. Enn og aftur er þarna um að ræða traust Islend- inga á að „svona gerist ekki hér“ en reynslan sýnir að því er ekki að treysta lengur. Þó hefur þess verið lengi gætt að lyfja- skápar og geymslur séu utan færis þeirra sem ekki eiga í þá erindi en sjúkraskrár eru oft á glámbekk að ekki sé talað um língeymslur og býtibúr sem eru oft ólæst og auðveld aðgöngu. Hafa skal það sem sannara reynisl Alltof oft hefur það gerst að starfsfólk verði vart við óboðna gesti en geri ekkert í málinu. Telji sig ekkert hafa með það að gera að spyrja við- komandi hvaða erindi hann eigi og þannig koma í veg fýrir frekari ágang og jafnvel þjófnað því allflestir þessara óboðnu gesta eru fljótir að fara ef eftir þeim er tekið. Þess eru mörg dæmi að komið sé og skoðað - fyrirtækið tekið út - áður en til þess kemur að inn í það sé brotist. Því er mikilvægt að hver og einn sé með augun hjá sér, hiki ekki við að spyrja um erindi þeirra sem hann hittir og ekki þekkir. Það er einnig mikilvægt að hafa öryggisgæsluna í lagi, að aðgangsstýri- kerfin séu þannig að auðvelt sé að nota þau og að allir starfs- menn séu með á hreinu hvernig á að nota þau. Nýju kortin, sem aðeins þarf að bera upp að lesara í stað þess að renna þeim í gegn um lesara, eru mjög þægileg og kerfi, sem bjóða Haukfrán augu öryggismyndavéla. upp á að stýra umferð um húsið og jafnvel nota kortin sem smartkort, eru sífellt að verða þægilegri. Einnig myndavéla- kerfi sem hægt er að stilla á marga vegu og jafnvel skoða í gegnum Netið. Maður er manns gaman Það má þó ekki ganga of langt í þessu fremur en öðru og sjálfsagt að fyrirtæki, sem ekki hafa þörf fýrir mikla gæslu vegna eðlis starfseminnar, hafi öryggisgæsluna í lágmarki og lítt sýnilega. Það má nefnilega ekki týna þessu mannlega - þeim hlýleik sem gjarnan hefur einkennt minni fýrirtæki og gerir að verkum að viðskipta- vinurinn hlakkar til að koma aftur og aftur í heimsókn og geta jafnvel sest með kaffibolla og spjallað um heima og geima. Við litum hvert á annað og sögðum: „Þetta þarf ekki hér - ekki á Islandi," með vísun í það að Island væri nú svo miklu betra land en hin og að hér dytti fólki ekki í hug „svona glæpa- mennska" sem þó var þekkt, bara ekki í mjög miklum mæli. 33 69

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.