Frjáls verslun - 01.03.2002, Qupperneq 71
Smartkort er lítið og handhægt og getur Farið í sund - greitt með Smartkorti. Nemandi í 10. bekk Kársnesskóla notar
uerið bæði sem snertikort og snertilaust Smartkort til að greiða í strætó.
kort.
Meðal viðskiptauina Smartkorta eru íþrótta- og tómstundaráð Reykjauíkur, Strætó bs., íslensk erfða-
greining hf., Borgarhöllin í Grafarvogi, Bláa lónið, Byggðasafnið að Geysi í Haukadal, Kársnesskóli, Stúd-
entagarðar Háskóla íslands, Uiðskiptaháskólinn að Bifröst, Sparisjóður Kópavogs, Wýherji og Securitas.
Sparisjóður Kópavogs, Nýherji, Securitas og Byggðasafnið að Geysi
í Haukadal. Einnig eru meðal viðskiptavina á fjórða hundrað kaup-
manna sem nýta sér greiðslukortaposa frá Smartkortum hf.
Fyrirtækið skilaði hagnaði á árinu 2001 og er í miklum vexti á inn-
lendum sem og erlendum mörkuðum. Ingenico, stærsti posafram-
leiðandi heims, keypti árið 2001 -15% eignarhlut í Smartkortum og
eru félögin nú í miklu samstarfi á erlendum vettvangi. Ingenico Group
hefur valið hugbúnað og tæknilausnir Smartkorta til sóknar á erlenda
markaði. Er þá sérstaklega horft til rafrænnar dreifingar forgreiddrar
þjónustu í gegnum fjölmörg notendaviðmót, s.s. posa og GSM-síma.
Búnaður sem verið er að setja upp erlendis eru á sviði forgreiddrar
GSM þjónustu. Nú þegar hefur fyrirtækið selt yfir 50.000 hugbún-
aðarleyfi á erlenda markaði, en mikill vöxtur er fyrirsjáanlegur.
Smartkort fyrir fyrirtæki og stofnanir
Innan fyrirtækja og stofnana er notkun Smartkorta þægileg lausn.
Dæmi um notkun Smartkorta á Stúdentagörðum Háskóla íslands:
Korthafar hlaða kort sín sjálfir rafeyri í hleðslustöð. Allar hleðslur
þeirra sem búa á Stúdentagörðunum skuldfærast á húsaleigureikn-
ing viðkomandi.
Kortin nota íbúar Stúdentagarða til að greiða fyrir notkun á
þvottavélum og þurrkurum í 16 þvottahúsum á staðnum. Til stendur
að innleiða sjálfsala á háskólasvæðinu sem taka við rafeyris-
greiðslum.
Með sama hætti má nota kortið til að skuldfæra kortahleðslur
starfsmanna fyrirtækja í launakerfi fyrirtækisins. Starfsmenn geta
þá nýtt kortið sem greiðslumiðil í sjálfsölum og sem matarmiða í
mötuneyti. Starfsmenn íslenskrar erfðagreiningar nýta kortið til að
opna og læsa skápum í búningsherbergjum.
Einnig hefur Smartkort hf. á boðstólum rafeyrislesara til gjald-
töku fyrir notkun hinna ýmsu tækja, t.d. þvottavéla, drykkjarvéla og
Ijósabekkja. Tengja má allt að 16 tæki sama lesara. 33
Notkun PAX-korts
Hér má sjá kóksjálfsala sem tekur
uið Smartkortum.
Fylgjum starfsmanninum Jóni eftir um
stund og sjáum huernig hann gæti notað
PAX-kortið.
Á leið í vinnuna greiðir Jón (strætó með því
að stinga PAX-korti í lesara. Hann gerir
slíkt hið sama til að hljóta aðgang um aðal-
dyr fyrirtækisins. Jón opnar skápinn sinn í
búningsherberginu og læsir yfirhöfn og
annað inni á öruggum stað. Jón vinnur á
þriðju hæð hjá fyrirtæki þar sem mikils
öryggis er gætt og starfsfólki ekki
ætlað að vera nema á sínum
starfsstöðvum. Jón stingur kort-
inu í lesara og hlýtur aðgengi að
þeim stöðum sem skilgreindir
hafa verið í aðgangsstýringakerfi
hússins. Hann greiðir með kortinu
fyrir kaffi og meðlæti í mötuneyti í
matar- og kaffítímum og gos og
sælgæti í sjálfsölum.
Jón ætlar að taka með sér
gögn heim og fer á bókasafn fyrirtækisins.
Þar framvísar hann kortinu og setur vörður
það í lesara um leið og hann skannar bæk-
urnar. Þegar Jón fer heim, ákveður hann að
fara í sund og þar getur hann enn og aftur
notað kortið.
Alla ofangreinda notkun má fá fram
með snertilausum kortum, en ofangreint
dæmi tekur mið af snertikorti, en fulia virkni
PAX-korts er einungis hægt að fá fram
með snertikorti.IIl
Snertilaus lás og stjórnstöð á skáp.