Frjáls verslun - 01.03.2002, Page 84
TRYGGINGAR flFKOMfl FJÖLSKYLDUNNAR
Tryggingin
minnkar
áfallið
Aföllin geta dunið á þegar síst
skyldi og enginn veit hvað fram-
tíðin ber í skauti sér. Allir hljóta
því að vera sammála um það að skyn-
samlegt og æskilegt er að gera ráð-
stafanir til framtíðarinnar ef þess er
nokkur kostur, t.d. með ijárhagsvernd
hjá tryggingafélagi ef til alvarlegs
sjúkdóms eða andláts kemur. Slíkt
getur að sjálfsögðu sett strik í reikn-
inginn og haft veruleg áhrif á afkomu
fjölskyldunnar allrar til lengri tíma.
Flestir hafa sjálfsagt velt trygginga-
málunum fyrir sér og einhverjir hafa
örugglega ýtt slíkum málum til hliðar, ákveðið að bíða með
ákvörðun „til betri tíma“. En hvenær skyldi sá tími renna upp?
Það er spurningin. Sennilega er best að bíða ekki og taka
frekar ákvörðun strax í dag því að betri timi kemur eflaust
aldrei. Yið ýtum ákvörðuninni sífellt á undan okkur.
Tryggingafélögin bjóða upp á margs konar tryggingar og
fjárhagsvernd, eitthvað misjafnt eftir félögum eins og gengur,
en í flestum tilfellum má finna úrval trygginga í boði, ekki bara
líf- og eða sjúkdómatryggingar heldur einnig söfnunartrygg-
ingar, aíkomutryggingar og svo mætti lengi telja. Ekki verður
kafað ofan í allar þessar tryggingar í þessari grein heldur verða
einungis sjúkdóma-, líf- og afkomutryggingar skoðaðar og
bent á að rétt er að kynna sér allar tryggingar vel og vandlega
áður en lengra er haldið, skoða óskir sínar og þarfir, velta fyrir
sér tryggingaþörfinni og fá ráðgjöf hjá sérfræðingi.
Sjúkdómatrygging í nýlegu fréttabréfi Alþjóða liftrygginga-
félagsins kemur fram að aðeins tveir af hverjum fimm eru með
sjúkdómatryggingu, samkvæmt könnun sem Gallup hefur
gert, og er nokkur munur eftir landshlutum. Þannig eru Reyk-
víkingar ekki jafn vel tryggðir gagnvart sjúkdómum og
nágrannar þeirra og fólk úti á landsbyggðinni. Það er þó full
ástæða fyrir alla, hvort sem þeir búa í Reykjavík eða annars
staðar, að kaupa sjúkdómatryggingu og reyndar fer það vax-
andi að ungt fólk geri það því að það gerir sér fyllilega grein
fyrir mikilvægi þess að vera vel tryggður. Alvarlegum veik-
indum geta fylgt áhyggjur af breyt-
ingum í ljármálum ijölskyldunnar. Veik-
indi geta auðvitað orðið til þess að út-
gjöldin aukast, t.d. vegna lyijakaupa, og
tekjurnar minnka og þá er gott að hafa
varasjóð í formi sjúkdómatryggingar.
Hjá flestum tryggingafélögum nær hún
yfir 16 algengustu sjúkdómana í dag,
t.d. kransæðasjúkdóma sem eru eitt
helsta heilbrigðisvandamál þjóðarinnar,
hjartasjúkdóma og krabbamein.
Þegar bótaíjárhæð í sjúkdóma-
tryggingu er ákveðin þarf að taka mið
af aðstæðum í samráði við ráðgjafa en
einkum er tekið tillit til ijölskylduhags og heimilisskulda og
er ráðlagt að upphæðin sé rífleg, dugi fyrir skuldum og fram-
færslu í jafnvel nokkur misseri. Þannig tekst íjölskyldunni
betur að einbeita sér að baráttunni við sjúkdóminn og halda
sínu eðlilega lífsmynstri og mæta samt útgjöldum vegna veik-
indanna, fara jafnvel í frí þegar erfiðasti hjallinn er að baki og
skipta um lífsstíl ef þörf krefur og vilji er fyrir hendi. Reynslan
er oft sú að bótatjárhæðin er greidd út ef viðkomandi veikist
og lifir í að minnsta kosti 30 daga frá því að sjúkdómurinn
greindist og aðgerð var gerð. Fjárhæðin er greidd út í einu
lagi og hún er skattfrjáls. Hún hefur ekki áhrif á rétt til bóta
frá Tryggingastofnun ríkisins eða úr sjúkrasjóðum stéttar-
félaga. Ef meira en helmingur starfsorkunnar tapast getur
viðkomandi fengið iðgjaldið lækkað, eða fellt niður, án þess
að tryggingaverndin skerðist.
Sjúkdómatryggingin hefur þann stóra kost að ná einnig til
barna, fósturbarna og stjúpbarna, fyrst og fremst á aldrinum
2-18 ára, ef þau eiga lögheimili á sama stað og sá sem er
skráður fyrir tryggingunni, án þess að greiða þurfi sérstakt
aukaiðgjald vegna þeirra. Það getur því komið sér sérstak-
lega vel fyrir ungt fjölskyldufólk með miklar skuldbindingar
að hafa þessa tryggingu.
Gera ráðstafanir Líftrygging er önnur trygging sem kemur
sér vel fyrir alla en þó sérstaklega vel fyrir ungt íjölskyldufólk
með fjárhagslegar skuldbindingar eða er í fjárskuldbind-
Stöðugt fleiri gera sérgrein fyrir
pví að alvarlegir sjúkdómar geta
haft gríðarleg áhrifá fjárhag ffói-
skyldna og einstaklinga. Æskilegt
er ab vernda afkomuna með pví
að kaupa líf, sjúkdóma- eða
afkomutryggingu.
Samantekt: Guðrún Helga Sigurðardóttir
84