Frjáls verslun - 01.03.2002, Síða 85
Alvarlegir sjúkdómargeta haft veruleg áhrifá fjárhagfjölskyldna og einstaklinga ogþví er œskilegt að leita sérfjárhagsverndar með því að kauþa
líf-, sjúkdóma- eða afkomutryggingu. Mynd: Geir Ólafsson
ingum fyrir aðra og almennt séð fyrir fólk
sem hefur fyrir öðrum að sjá og hefur tek-
ið á sig tjárskuldbindingar vegna þess. Líf-
ið er því miður óútreiknanlegt og því er
ástæða til þess að gera ráðstafanir til að
tryggja afkomu fjölskyldunnar ef eitthvað
kemur upp á. Skuldirnar hverfa ekki og
því er nauðsynlegt að sjá til þess að fjöl-
skyldan eigi trygga ijárhagslega framtíð
þó að fyrirvinnu njóti ekki lengur við.
Líftrygging er því nauðsynlegur öryggis-
ventill, sérstaklega fyrir fólk á aldrinum
26-40 ára þegar barnafjöldi er mestur og
fjárhagsbyrði fjölskyldunnar er mest. Það
helst í hendur að þá er þörfin fyrir líf-
tryggingu mest þó að auðvitað sé hún alltaf fyrir hendi.
Líftryggingarfjárhæð er greidd út í einu lagi ef hinn
tryggði deyr á tryggingartímanum. Iðgjald líftryggingarinnar
fer eftir heilsufari viðkomandi á þeim tíma þegar tryggingin er
keypt og er í flestum tilfellum hægt að velja sér líftryggingar-
fjárhæð, gjarnan í samráði við ráðgjafa viðkomandi trygg-
ingarfélags. Tryggingin er verðtryggð og helst raunvirði að
fullu, oftast fram að fimmtugu, en lækkar hlutfallslega árlega
eftir það þó að iðgjaldið breytist ekki. Oftast er hægt að kanna
hvort hægt sé að fá iðgjaldið lækkað eða fellt niður um
skemmri tíma við alvarleg slys eða veik-
indi og halda liftryggingunni samt í fullu
gildi. Líftryggingin er skattfrjáls.
Mánaðarlegar bætur Afkomutrygging er
trygging sem getur komið sér vel þegar
starfsorkan skerðist til lengri eða skemmri
tíma og tekjur ijölskyldu eða einstaklings
lækka eða falla niður, ekki síst hjá þeim
sem starfa sjálfstætt og njóta ekki sömu
kjara og launþegar. Slík áföll geta auðvitað
haft veruleg áhrif á fjárhag fjölskyldunnar
og einstaklingsins ef engin afkomutrygg-
ing er fyrir hendi. Ef hinn tryggði lendir í
slysi eða sjúkdómum, sem skerða starfs-
orkuna, fær hann greiddar mánaðarlegar bætur til lengri tíma,
yfirleitt allt að 60 eða 65 ára aldri, og þannig tekst honum að
halda miklum hluta launa sinna meðan hann er frá vinnu. Sam-
kvæmt upplýsingum frá tryggingafélögunum er þörfin fyrir
vernd afkomutryggingar mest á aldrinum 26-40 ára því að þá
er fjárhagsbyrðin venjulega mest. Eftir fertugt getur þó verið
mikil þörf fyrir hendi vegna skulda og fr amfærslu barna.
I þessari grein er einungis skautað hratt í gegnum þrenns
konar tryggingar. Til að fá nánari upplýsingar um þessar trygg-
ingar er rétt að benda á að leita til tryggingafélaganna.Œj
Flestir hafa sjálfsagt velt
tryggingamálunum fyrir sér
og einhverjir hafa örugg-
lega ýtt slíkum málum til
hliðar, ákveðið að bíða
með ákvörðun „til betri
tíma“. En hvenær skyldi sá
tími renna upp?
85