Frjáls verslun - 01.03.2002, Side 94
Hearstkastalinn er nærri litlu þorpi, San Simeon, sem er nánast miðja vegu milli
stórborganna Los Angeles og San Francisco, líklega um fjögurra tíma akstur frá
hvorri um sig.
Blaðakóngurinn og milljarðamœringurinn W.R.
Hearst fékk þá hugmynd árið 1919 að breyta
sumarathvarfi sínu í minnismerki um sig. Hann
reisti forláta kastala með 115 herbergjum. Þeir
sem ferðast til Kaliforníu ættu að leggja lykkju á
leið sína og skoða Hearstkastalann; hann er
nœrri litlu þorþi, San Simeon.
Eftir Benedikt Jóhannesson
Það finnst margt sérstætt í Bandaríkjunum og
sumir segja að landið sé svo fjölbreytilegt að það
sé fátt sem ekki er tíl í Ameríku. En eitt er þó
sjaldséð, en það er kastalar, sem eru á hveiju strái á
meginlendi Evrópu. Astæðan er að sjálfsögðu sú að
landið byggðist eftir að menn höfðu tekið upp aðra
byggingarhætti, auk þess sem innanlandsskærur voru
fátíðari þar en í gamla heiminum. En sýndarveruleik-
inn er ekki nýtt fyrirbæri í Vesturheimi. Alþekkt er að
Disney-fyrirtækið hefur skapað sinn eign heim þar
sem hallir og kofar skiptast á. I Kaliforníu er hins vegar
að finna sérstætt hús sem er blanda af nýsmíði og eft-
irlíkingu, höll sem gnæfir yfir umhverfið. Hvaða heil-
vita manni skyldi hafa dottið í hug að setja svona mann-
virki þarna Jjarri öllum stórborgum? Það er umdeilan-
legt hvort svarið er bara einum eða engum!
Þó að kastalinn minni úr Jjarlægð á miðaldakastala
og reyndar komi í ljós þegar nær dregur að hann er
ekki úr plastí eins og Disney-heimurinn heldur er raun-
verulega um að ræða afar vandaða byggingu, með ekta
súlum, styttum og skrauti frá fyrri öldum. Það gætí
hins vegar vafist fyrir mönnum að skilgreina húsið frá
einhveiju ákveðnu tímabili, því að þarna er að finna súlur frá Egypta-
landi, styttur frá Róm og lágmyndir frá Grikklandi hlið við hlið.
Það var blaðaútgefandinn og milljarðamæringurinn W.R: Hearst sem
fékk þá hugmynd árið 1919 að breyta sumarathvarfi sínu í minnismerki
um sig og listaverkasafn sitt. A hæðunum vildi hann geta tekið á mótí
tignum og frægum gestum með viðeigandi hættí. Þegar upp var staðið
hafði Hearts reist höll með 115 herbergjum, þrjú gestahús, hvert með
Jjölmörgum herbergjum, gert inni- og útisundlaug, skrúðgarða, tennis-
velli og meira að segja dýragarð. Nú á dögum er Hearst meðal annars
þekktur sem Jyrirmyndin að Borgara Kane í samnefndri kvikmynd Or-
sons Wells. Flestir sem sjá myndina telja eflaust að um sé að ræða
skopútfærslu á öfgakenndum auði söguhetjunnar en þegar í kastalann er
komið efast maður um að kvikmyndapersónan jaJhist á við fyrirmyndina.
Blaðaútgefandinn
og milljarðamœr-
ingurinn W.R.
Hearst. Nú á
dögum er hann
meðal annars
þekktur
sem jýrirmyndin
að Borgara Kane í
samnefndri kvik-
mynd Orsons
Wells.
I