Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 6

Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 6
RITSTJÓRNARGREIN „Hvítllibbarnir sleppa alltaf!" „Hvítflibbai'nir sleppa alltafl" Það þarf ekki að fara mörg ár aftur í tlmann til að finna út að það var útbreidd skoðun almennings hér á landi að innan fyiirtækja kæmust hvitflibbai-nir, þ.e. stjórnendur og skrifstofufólk, upp með sína glæpi á meðan lögreglan væri að eltast við smákrimma með kúbein sem brytust í ölæði inn í verslanir og hefðu eitthvað smá- ræði upp úr krafsinu. Eflaust var ýmislegt til í þessu. Fréttir um íjárdrátt þykja móralskt slæmar og neyðar- legar fyrir viðkomandi fyrirtæki. Eitthvað sem yfir- menn og starfsmenn skammast sín hálfpai'tinn fyrir. Sumir hafa þá skoðun að það séu ekki hagsmunir fyrirtækjanna að svona mál séu í kastljósi fjölmiðla því þau skaði ímyndina og að almenningur tengi þau jafnan við óreiðu. Eflaust er margt til í sögusögnum á ái'um áður um Jjárdrátt og annan þjófnað starfsmanna sem komst upp en var ekki kærður til lögreglunnar. Að farið hafi verið með svona mál sem innanhússmál þar sem þjófarnir voru reknir, en ekki kærðir, og almenningur fékk ekkert að vita. Hvítflibbarnir Sleppa ekki Núna eru breyttir tímar. í hverjum fréttatímanum af öðrum verður fólk vitni að rannsókn lögreglu á svonefndum hvítflibbabrotum. Fjárdrátturinn hjá Símanum og gæsluvarðhald tjögurra ungra manna í kjölfarið, m.a. þeirra Arna Þórs Vigfússonar og Kristjáns Ra. Kristjánssonar, frumheijanna á Skjá einum, ber auðvitað hæst. Hann er stórþjófnaður og á ekkert skylt við eitthvert viðskiptasiðferði sem er á mörkunum. Forstjóri Símans á hrós skilið fyrir þær ítarlegu upplýsingar sem hann hefur sent frá sér til að upplýsa aimenning. Símamálið var hins vegar rétt að hefja sig til flugs þegar greint var frá rannsókn sænsku lögreglunnar þar sem sex menn, þar af fimm íslendingar búsettir erlendis, væru grunaðir um innheija- svik í tengslum við yfirtöku Kaupþings á JP Nordiska sl. sumar. Kaupþing er ekki til rannsóknar og virðist raunar vera þolandi í málinu. Þegar við bætast fréttir um lögreglurannsókn hjá Baugi, um allsheijar rannsókn á skattamálum helsta eiganda Norður- ljósa, Jóns Olafssonar, ijölmennar innrásir lögreglu og Sam- keppnisstofnunar í þekkt stórfyrirtæki, eins og oliu- félögin, og síðast en ekki síst svikin í kringum Enron og WorldCom í Bandaríkjunum, er engin furða þótt almenningur spyiji sig hvort það séu ekkert nema glæpamenn, sem stýri fyrirtækjum. Auðvitað er svo ekki. Stjórnendur fyrirtækja eru í það heila heiðarlegir og fara að settum reglum. Hasar og gassagangur Enginn getur haldið því fram lengur að hvítflibbabrot séu feimnismál sem rati aldrei í flölmiðla. Ef eitthvað er má velta því fyrir sér hvort lögregla og samkeppnisyfirvöld beití of miklum hasar og gassa- gangi við rannsókn meintra hvitflibbabrota. Þá er ég ekki að tala um þjófnað í fyrirtækjum, eins og Jjárdráttinn hjá Símanum. Gagnrýnt hefur verið hvað Samkeppnisstofnun fer fram með miklum gauragangi inn í fyrirtæki í leit að skjölum. Sveitir lögreglumanna, gráar fyrir járnum, ryðjast inn í fyrirtæki og það vantar nánast ekkert nerna að þyrlur sveimi yfir svæðinu. Þegar gögn hafa verið tekin liða svo frekar ár en mánuðir þar til eitthvað bólar á niðurstöðum rannsóknar - og hvort stofnunin hafi fundið það sem hún leitaði að, hvort grunur hennar hafi reynst réttur. Svo er komið, að aðferðafræðin við gagnaöflunina og tjölmiðla- hasarinn í kringum hana dugir orðið tíl að stimpla Jyrirtækin sek. Hvað t.d. ef grunur sænsku lögreglunnar reynist ekki á rökum reistur og ekkert sannast fyrir dómstólum um ólögmæt innheija- viðskiptí í tengslum við kaupin á JP Nordiska? Er þá bara nóg að segja „sorifr? Bent hefur verið á það hvort ekki hefði dugað Jyrir sænsku lögregluna að afla gagna með bréfasendingum og fyrir- spurnum fremur en að setja upp leflait sem minnir á góðan trylli frá Hollywood. Hafi hvítflibbaglæpir einhvern tíma verið feimnismál sem aldrei var sagt frá er það liðin tíð. Og í vissum tilvikum kann aðferðafræði lögreglu við gagnaöflun að vera komin út í öfgar. En stórþjófnað, eins og hjá Símanum, á að segja rækilega frá. Hann er víti fyrir ungt fólk í viðskiptum að varast. 33 Jón G. Hauksson £-23 tttt rr^ r / -i - r -j L * -I Stofiiuð 1939 Sérrit um viðskipta-, efnahags- og atvinnumál - 65. ár Sjöfn Guðrún Helga Geir Ólafsson Hallgrímur Sigurgeirsdóttir Sigurðardóttir Ijósmyndari Egilsson auglýsingastjóri blaðamaður útlitshönnuður RTTSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Jón G. Hauksson AUGLÝSINGASTJÓRI: Sjöfn Sigurgeirsdóttir BLAÐAMAÐUR: Guðrún Helga Sigurðardóttir UÓSMYNDARI: Geir Ólafsson UMBROT: Hallgrímur Egilsson ÚTGEFANDI: HeimurM. ^ heimur RTTSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA: Borgartúni 23,105 Reykjavík, sími: 512 7575, fax: 561 8646, netfang: fv@heimur.is ÁSKRIFrARVERÐ: lrr 7.700.-10% afsláttur ef greitt er með kreditkorti. LAUSASÖLUVERÐ: 799 kr. DREIFING: Heimurhf., sími 512 7575 PRENTVINNSLA: Gutenberghf. UÓSMYNDIR: © Heimur lií. - Öll réttindi ásldlin varðandi efni og myndir ISSN 1017-3544 6

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.