Frjáls verslun - 01.05.2003, Blaðsíða 93
VÍNPISTILL SIGMflRS B.
RÓSavíll Áður en lengra er haldið vildi ég aðeins minnast á
hið eina sannkallaða sumarvín og það er rósavínið. Einhverra
hluta vegna drekka Norðurlandabúar sáralítið af rósavíni.
Rósavínið er mikið drukkið í löndunum umhverfis Miðjarðar-
hafið. Mín kynslóð, 68 kynslóðin, kynntist þó dásemdum létt-
vínanna með þvi að drekka rósavín. Hér á ég að sjálfsögðu við
hið ágæta portúgalska rósavín Matheus sem allir vínspekingar
tala um af mikilli tyrirlitningu. Rósavínið er frískandi og ágætt
sem fordrykkur og með kjöti og fiski. Það á einkar vel við með
glóðarsteiktum og vel krydduðum mat. Þegar rósavín er gert
er þrúgusafinn látinn vera í snertingu við hýðið þangað til rétt-
ur litur er fenginn, en sem kunnugt er kemur liturinn úr hýð-
inu. Hýðið og aldinkjötið er svo síað frá þrúgusafanum. Rósa-
vín er efdr það svo framleitt svipað og hvítvín. Meðal þeirra
rósavína sem hægt er að mæla með er Torres de Casa Rosado
á 1.090 krónur. Þetta er einkar ljúft vín, hálfþurrt, með góðu
ávaxtabragði - hentar vel með krydduðum mat. Prestige Bor-
deaux á 1.110 krónur er létt og bragðmikið rósavín, frekar
þurrt. Gott með feitum fiski eins og lúðu, laxi og glóðarsteikt-
um kjúkiingi. Fleur de Rosé frá Georges Du Boeuf á 990
krónur er þægilegt vín með ljúfu beijabragði sem minnir á
jarðarber og kirsuber. Gott vín til að smjatta á meðan grillið er
að hitna og ágætis vín með miklum hvítlauk eða nautakjöti
með piparsósu.
Grill 09 sósur Glóðarsteiking er matreiðsluaðferð sumarsins
og karlmanna. Gæði íslenska nautakjötsins hafa vaxið mjög á
síðari árum. Gott nautakjöt þarf að vera búið að hanga og vera
fallegt og fitusprengt. Gott er að byija á því að steikja kjötið við
mikinn hita en halda svo áfram að steikja það við frekar lágan
hita og færa grillgrindina upp. Bandaríkjamenn eru sérfræð-
ingar í glóðarsteikingum og má segja að þessi matreiðsluað-
ferð sé framlag þeirra til matargerðarlistarinnar. Þá er hægt að
fá í Bandaríkjunum úrvals nautakjöt. í verslunum hér á landi er
hægt að fá ýmsar tegundir af grillsósum. Sósur þessar eru mis-
jafnar að gæðum, oft á tíðum allt of sterkar, t.d. iýrir lambakjöt.
Best er því að búa til sósuna heima.
Hér kemur uppskrift að ljómandi góðri sósu sem passar
einkar vel með nautakjöti. Það sem þarf í sósuna er:
1 dl soyasósa
2 msk Dijon sinnep
1 msk sítrónusafi
4 hvítlauksrif, fínt söxuð
1 tsk rifin engiferrót
1/2 tsk timian
1/2 tsk svartur pipar
1 msk ferskt, fínt saxað rósmarín
Blandið þessu öllu saman og pensfið nautasteikurnar með sós-
unni og glóðarsteikið. Áströlsku rauðvínin passa frábærlega vel
með glóðarsteiktu nautakjöti. Peter Lehmann Weighbridge
Shiraz er nýtt vín hér frá víngerðarmeistaranum Peter Leh-
mann. Þetta er þægilegt vín, léttkryddað með góðu beijabragði
og bragði af þurrkuðum ávöxtum. Annað gott vín frá meistara
Lehmann er Cabernet Sauvignon á 1.560 krónur. Þetta er mikið
vín með krydd- og eikarkeim. Fyrir þá sem eru ekki mikið lyrir
kröftug og bragðmikil rauðvín er hægt að mæla með Turning
Leaf Zinfandel á 1.190 krónur. Þetta er þægilegt vín með ljúfu
ávaxtabragði og jafnvel bragði af kirsubeijum og súkkulaði.
Freyðívln Það virðist gilda sama lögmálið um kampavín og
rósavín hér á landi, íslendingar drekka lítið af kampavíni og
freyðivíni, alla vega ef miðað er við Frakka, Spánveija og ítali.
Fátt er betra á heitum og sólríkum sumardegi en glas af vel
kældu kampavíni. Kampavín kostar skildinginn en í verslunum
ÁTVR má nú fá ljómandi freyðivín á góðu verði. Jacob’s Creek
Chardonnay Pinot Noir á 1.090 krónur er þurrt og frískandi
freyðivín með léttum ávaxtakeim. Burti Pinot Chardonnay
Brut á 970 krónur er ágætis freyðivín, ljómandi fordrykkur,
kitlandi eftirbragð, þurrt en margslungið. Þetta freyðivtn er
gott með reyktum laxi og bragðmiklum mat.
HvltVÍn Það er kjörið að drekka gott hvítvín í staðinn íýrir
bjór eða sterka drykki. Frakkar segja að bjór sé iðnaðarvara en
vín menning. Frábært sumarvín er Brundlmayer Riesling
Langenloiser Berg á 1.670 krónur. Þetta vín er eitt best varð-
veitta leyndarmálið í verslunum ÁTVR. Það er þurrt, frískandi
en margbrotið, bragð af góðum eplum, melónum og jafnvel
kiwi. Franck Millet Sancerre á 1.500 krónur er frábært vín með
laxi og humri. Þetta er þurrt og sýruríkt vín með ljúfu bragði af
ferskum ávöxtum, einkum eplum og sítrónum. Nýtt vín á
reynslulista ÁTVR er Antinori Orvieto Classico Campogrande
á 990 krónur. Þetta er einfalt vín á góðu verði. Vínið er óeikað,
þurrt og ferskt. Bragðið er þægilegt, gott vín á góðu verði. Œi
Sigmar B. Hauksson mælir með eftirtöldum vínum:
Rauðvín
Weighbridge Shiraz á 1.990 krónur
Peter Lehmann Cabernet Sauvignon á 1.560 krónur
Turning Leaf Zinfandel á 1.190 krónur
Freyðivín
Jacobs Creek Chardonnay á 1.090 krónur
Hvítvín
Brundlmayer Riesling Langenloiser Berg á 1.670 krónur
Franck Millet Sancerre á 1.550 krónur
Antinori Orvieto Classico Campogrande á 990 krónur
93