Frjáls verslun - 01.05.2003, Blaðsíða 74
geri miklar kröfur sjálfur. Það er besta viðmiðunin, því ef ég
er sáttur þá eru viðskiptavinirnir sáttir.“
GB-ferðir:
GOLFFERÐIR MEÐ SÓLARHRINGS FYRIRUARA
Jóhann Pétur Guðjónsson, framkvæmdastjóri GB-ferða.
Helgarferðir vinsælar Golfferðir eru vinsælar hjá íslend-
ingum að sögn Jóhanns. Hann segir um 12.000 manns greiða
árgjöld hjá golfklúbbum hér á landi og marga þeirra ferðast
erlendis með golf í huga. „Styttri ferðirnar eru vinsælli yfir
sumartímann hjá okkur. Okkar vinsælasti áfangastaður í dag
er án efa Marriott Hanbury Manor, sem er fimm stjörnu
golfhótel og heilsulind. Það sem hefur tíðkast hingað til er að
kylfingar hafa verið að fara í golfferðir á vorin áður en tímabilið
byijar hérna og á haustin eftir að tímabilinu lýkur hér heima.
Það mun vissulega vera svo áfram en ég hef séð að það er
mikill áhugi iyrir helgarferðum á sumrin enda ekkert sem
mælir gegn því að kylfingar fari utan á sumrin til að spila golf,
þegar vellirnir eru í sínu besta formi,“ segir Jóhann.
Við sérhæfum okkur í golfferðum iyrst
um sinn og bjóðum upp á skipulagðar
hópferðir til Portúgals, Bandaríkjanna,
Englands og Þýskalands. Þar að auki
bjóðum við nýjung á íslenskum markaði,
helgarferðir til Englands og Danmerkur í
samstarfi við Iceland Express. Þarna er um
að ræða tveggja daga ferðir þar sem gisting,
golf, kvöldverður og morgunverður er inni-
falið í verði. Hægt er að velja um átta mismunandi pakka, ýmist
á Englandi eða í Danmörku."
Jóhann segir þessar ferðir sérstakar að því leytinu til að um
sé að ræða svokallaðar „off the rack“ ferðir, þ.e. viðskipta-
vinurinn ræður því hvenær hann fer og hversu lengi hann
dvelur og hægt er að bóka þær með mjög stuttum fýrirvara eða
allt niður í sólarhring.
„Miðað við viðtökurnar er greinilega eftirspurn eftir slikum
ferðum,“ segir Jóhann. „Það er mikið um pantanir af þeim sem
leið eiga um England í viðskiptaerindum en þeir sjá hag sinn í
að nýta ferðina betur og enda hana í golfi.“
Ánægðir viðskiptavinir Að mati Jóhanns Péturs er vaxandi
markaður fyrir sérhæfðar ferðaskrifstofur sem eru smáar í
sniðum. „Þetta gengur út á að bjóða upp á góða þjónustu þar
sem seljandinn er sérfróður um sína vöru,“ segir hann.
„Sérferðir eru þess eðlis að það er erfitt að ná árangri nema
með mikilli þekkingu og gæðum. Það sem skiptir mig
persónulega miklu máli er að ég get staðið 100% á bak við
mínar ferðir. Eg sel aldrei ferð til einhvers áfangastaðar
nema hafa tekið hann út sjálfur. Það kunna mínir viðskipta-
vinir að meta. Ég hef ferðast og spilað golf víða um heim og
Hagstætt verðlag Jóhannsegirtalsverthafa
borið á því að kylfingar dragi sjálfkrafa þá
ályktun að fimm stjörnu áfangastaðir séu allt
of dýrir. „Við höfum náð einstaklega hag-
stæðum samningum við hina og þessa staði,
td. við Marriott Hanbury Manor, Englandi,
þar sem besta tilboðið hljóðar upp á 13.900 kr.
Fyrir þá fjárhæð fæst ein gistinótt, þriggja
rétta kvöldverður, morgunverður og 36 holur
á Jack Nicklaus II vellinum. Ef fólk myndi panta sama pakka
beint af Marriottkeðjunni myndi hann kosta um 39.000 kr.“
„Draumahelgi golfarans" GB-ferðir og Iceland Express
standa fyrir helgarferðum í allt sumar og haust. Leiðin liggur
til Marriott Hanbury Manor, fimm stjörnu paradísar
kylfingsins. Stutt er frá flugvelli til hótelsins, þannig að hver
mínúta nýtist til hins ítrasta. Innifalið er flug með Iceland
Express, ferðir til og frá flugvelli, íslensk fararstjórn, tvær
nætur með morgunverði og þriggja rétta kvöldverði og 36
holur á Jack Nicklaus II vellinum
„Ég hef farið þrisvar sinnum á Hanbury Manor á síðustu 4
vikum og spilað þar fjöldann allan af hringjum. Völlurinn er í
fullkomnu ástandi þessa dagana. Allir viðskiptavinir mínir taka
undantekningalaust undir þetta og margir hveijir telja þetta
besta völl sem þeir hafa spilað. Skýringin er að hluta til sú stað-
reynd að þessi völlur er lokaður almenningi. Einungis með-
limir og gestir hótelsins hafa rétt á því að spila völlinn. Völlur-
inn hélt Opna enska meistaramótið á árunum 1997-1999. Þegar
golfið er búið þá er fjörið rétt að bytja. Öll aðstaða er til fýrir-
myndar, heilsulindin er mjög góð, veitingastaðirnir eru þrír
talsins og öll upplifun er einstök." SD
GB-ferðir er ferðaskrifstofa
sem stofnuð var sumarið
2002. Stofnandi og fram-
kvæmdastjóri er Jóhann
Pétur Guðjónsson.
Heimasíða GB-ferða er www.gbferdir.is
74