Frjáls verslun - 01.05.2003, Blaðsíða 70
Þóra Hrönn Njálsdóttir og Sigurjón Pétursson hafa víða farið. Hér prófa þau kajak heima í garði
Uppáhaldsstaðirnir okkar
Mestu skiptir að vera með eiginkonunni minni Þóru
Hrönn Njálsdóttur en fáar eru ferðirnar sem ég fer án
hennar samfylgdar," segir Siguijón Pétursson, fram-
kvæmdatjóri Verk- og kerfisfræðistofunnar hf., VKS, dóttur-
félags Kögunar. „Þá skiptir staðurinn ekki meginmáli. Einnig
ber að hafa hugfast að ekki þarf endilega að fara langt tíl að
finna fallega staði útí í náttúrunni. Þeir eru oftar en ekki
margir hveijir ótrúlega nálægt ef maður aðeins gefur sér tíma
til að líta niður. En þessir staðir sem ég nefni eru uppáhalds-
staðir okkar hjóna að öðrum ólöstuðum.“
1. Krýsuvíkurkirkja Sá staður sem er okkur hvað allra
kærastur er Krýsuvíkurkirkja og allra nánasta umhverfi
hennar. Kirkjan er mjög einföld að allri gerð og þar ríkir mikill
Mður. Kjörinn staður til að finna sjálfan sig og ná innri sátt við
lífið og tílveruna. Svæðið er kynngimagnað jarðfræðilega,
sögulega og þjóðsögulega.
2. Að fara á kajak í Rangala í Lónafirði í Jökulfjörðum Þangað
er einstakt að koma hvort sem er að sumri eða veM. Háreist
fiöll, gríðarlegur gróður og skjól langt norðan allra manna-
byggða. Selir sóla sig á steinum, mikið og ijölbreytt fuglalif og
fiskurinn veltir sér í ósnum. Að róa inn Lónafjörð og Rangala á
kajak t.d. seinni hluta nætur er eitthvað sem aldrei gleymist. Að
koma þarna að vetri eða vori áður en snjóa leysir er enn áhrifa-
meira.
3. Vélsleðaferð um hálendið, jökla og firði norðan Steingríms-
fjarðarheíðar Þetta er stórkostlegt vélsleðaland. Dranga-
jökull með Hrollleifsborg og Hljóðabungu, út Snætjallaströnd
með útsýni yfir allt ísaijarðardjúp og ótal firðir sem hægt er
að stinga sér niður í og skoða fornar eyðibyggðir og riija upp
söguna um baráttu Islendinga fýrr á öldum iýrir lífinu. Enda-
punkturinn er sundlaugin í Reykjafirði nyrðri á Ströndum.
4. Kajakaferð að Drangaskörðum á Ströndum Meiríháttar
kajakland. Hvernig fór fólkið að því að draga fram lífið? Ekki
lifði það á náttúrufegurðinni.
5. Snæfell Fjallið heilaga og eitt af þremur höfuðijöllum
landsins. Snæfellið er hæsta Mstandandi ijall landsins. Allt
Snæfellssvæðið er eitt ævintýraland hvenær sem er ársins og
hvernig sem menn kjósa að ferðast um svæðið, fótgangandi,
ríðandi, á vélsleðum o.s.frv. Þar eru hreindýr, fuglar, heitar
laugar, jöklar o.fl. Ekki skemmir mannlífið í nærfiggjandi
byggðum. A Jökuldal, í Hrafnkelsdal og í Fljótsdal búa fróðir
menn og skemmtilegir.
6. Grímsstaðir á Fjöllum og Herðubreið Herðubreið er eitt af
höfuðfjöllum landsins. Að vakna á fögrum morgni í risher-
berginu í gamla bænum að Grímsstöðum á Fjöllum og horfa
suður til Herðubreiðar er ógleymanleg stund.
7. Þórisdalur sunnan Langjökuls Þórisdalur er girtur jöklum
á þijá vegu, að honum figgja Þórisjökull, Geitlandsjökull og
Langjökull. Þetta er stórkostlegt göngu- og vélsleðaland.
8. Langisjór og Sveinstindur Langisjór og svæðið þar í kring
er í raun vannýtt til ferðlaga þó nokkur breyting hafi verið að
eiga sér stað nú allra seinustu ár. Stórkostlegt svæði á hvaða
tíma árs sem er. Hér er mikil vetrarfegurð og gott að koma í
skála Utivistar austan við Sveinstind þar sem Skaftá rennur
fram með Fögrufjöllum.
9. Strandarkirkja á nýársdag okkur hjónum finnst mjog dýr-
mætt að koma í Strandarkirkju á nýársdag og heilsa þar nýju
ári. Þar er einnig mikil saga. Mikið hefur verið heitið á
Strandarkirkju í sambandi við erfiðleika fólks og hún því
nátengd íslensku þjóðlífi. B3
70