Frjáls verslun - 01.05.2003, Blaðsíða 26
FJÁRDRÁTTUR í FYRIRTÆKJUM
greina nákvæmlega frá því hvert flármagnið rann en þó hefur
komið ffam að um 130 milljónir runnu til fyrirtækisins Alvara
lífsins ehf.
120 milljónir falla undir annan fyárdrátt aðalgjaldkerans fyrr-
verandi. Svo virðist sem hann hafi dreift ijármagninu, sem
hann tók ófrjálsri hendi, samkvæmt eigin geðþótta og mun sá
þáttur koma í ljós þegar lögreglurannsókn lýkur og málið fær
eðlilega meðferð hjá dómstólum landsins.
Síminn mun leggja áherslu á að rekja allar greiðslur frá aðal-
gjaldkeranum fyrrverandi og munu endurkröfur verða gerðar
samkvæmt lögum.
D. Innra 09 ytra eftirlit Frá því að málið kom upp hefur aðal-
áherslan verið lögð á að upplýsa brotið og vernda rannsóknar-
hagsmuni, í samvinnu við lögreglu. Ljóst er að málið er álits-
hnekkir fyrir Símann og hefur reynt mikið á starfsmenn fyrir-
tækisins.
Aðferðir fyrrum aðalgjaldkera voru um margt óhefðbundar
og slungnar og fóru fram hjá hefðbundnu innanhúss eftírlits-
kerfi Símans og endurskoðanda Símans, Ríkisendurskoðun.
Fyrrum gjaldkeri hafði mikla þekkingu á innviðum félags-
ins og ásetningur hans var mikill. Hann naut trúnaðar sam-
starfsmanna og }dirmanna en misnotaði það traust. Auk þess
er ljóst að ytri og innri eftírlitskerfi virkuðu ekki eins og til var
ætlast. I þessu liggur alvarleiki málsins og á því er nú tekið.
Afram verður unnið við að bæta eftirlitskerfi og alla innri ferla,
bæði innanhúss svo og með utanaðkomandi sérfræðingum.
E. InnanhÚSS rannsúkn Aðferðir fyrrverandi aðalgjaldkera
við að draga sér fé eru flóknar og margbrotnar en það gerir alla
bókhaldsendurskoðun málsins erfiða. Velta félagsins á ári er
rétt um 18 milljarðar og fylgiskjöl í bókhaldi Símans nema millj-
ónum á ári hveiju. Síminn mun hins vegar leggja kapp á að
upplýsa þetta sakamál.
F. Lánveitingar Símans í tengslum við þetta sakamál hefur
töluvert verið rætt um lánveitingar Símans.
Ráðning aðalgjaldkerans
Aðalgjaldkerinn fyrrum hóf störf hjá Símanum 1. október
1998. Ráðning hans fór fram með hefðbundnum hættí.
Leitað var tíl ráðningarstofu sem mælti með honum til
starfsins. I atvinnuumsókn kemur fram: Utskrifaðist úr Wet
Mesa High, Albaquerque, New Mexico í Bandaríkjunum
1985. Var síðan í tvö ár, 1987-1989 í rekstrarhagfræði við
University of New Mexico. Arið 1991 fór hann í Tækniskóla
Islands og lauk þar námi sem iðnrekstrarfræðingur af
framleiðslusviði. Sótti síðan námskeið í markaðsfræðum
hjá Endurmenntunarstofnun HI. Starfsreynsla samkvæmt
umsókn var verkstjórn í byggingariðnaði, eigið fyrirtæki
og gerð markaðskannana. Síðan sölustjóri hjá Kexverk-
smiðjunni og Jjármálastjóri Fíns miðils. FV
Síminn stundar ekki almenna lánastarfsemi. Hins vegar
lánar Síminn, rétt eins og tíðkast í íslensku viðskiptalífi, dóttur-
og hlutdeildarfyrirtækjum sínum, samkvæmt samþykki
stjórnar, og skuldbreytir ef viðskiptavinir lenda í vanskilum. Að
gefnu tilefni skal það tekið fram að Alvara lífsins ehf. er ekki,
og hefur aldrei verið, dóttur- eða hlutdeildarfélag Símans.
Þess ber að geta að Síminn ávaxtar lausafé sitt til skamms
tíma t.d. með því að kaupa víxla og önnur verðbréf. Þessi við-
skipti hafa í öllum tilvikum farið í gegnum löggild verðbréfa-
fyrirtæki og banka.
G. Einkarekstur fyrrum aðalgjaldkera í byrjun þessa árs gaf
fyrrum aðalgjaldkeri út skriflega yfirlýsingu, í samræmi við
siðareglur félagsins, þess efnis að hann hafi látið af öllum
einkarekstri. Nú hefur hins vegar komið í ljós að yfirlýsingin
var ómerk.
Þegar aðalgjaldkeranum fyrrum var vikið úr starfi áttí hann
ekki inni sumarleyfi hjá fyrirtækinu.
H. Aðgerðir stjórnenda - fyrirbyggjandi aðgerðír - hert eftirlit
Um leið og málið kom upp óskaði stjórn Símans eftir greinar-
gerð Ríkisendurskoðunar um málið. Auk þess var forstjóra
falið að ráða utanaðkomandi endurskoðanda til að fara yfir
helstu verklagsreglur svo og innri ferla hjá fyrirtækinu.
Frá því að ný stjórn og nýr forstjóri tók til starfa innan Sím-
ans hefur mikil vinna verið lögð í að endurskipuleggja félagið.
Nýtt og breytt stjórnskipurit tók gildi um síðustu áramót. Frá
gildistöku þess hefur nýr framkvæmdastjóri Jjármála- og rekstr-
arsviðs unnið að því að skýra reglur, ábyrgð og völd innan sviðs-
ins. Ljóst er að sakamálið leiðir til þess að þeirri vinnu verður
hraðað sem kostur er og ábyrgð manna skýrð enn frekar.
Nú þegar hefur verið mikið lagt upp úr vinnslu verkferla og
er þeirri vinnu ólokið. I henni er m.a. gert ráð fýrir reglu-
bundnum flutningi verkefna á milli manna, skýrum og
nákvæmum reglum um sumarleyfi tiltekinna starfsmanna þar
sem þeim verður m.a. gert að taka stóran hluta orlofsins í sam-
fellu svo og yfir mánaðamót. Þessir verkferlar verða kynntir
þegar þeir liggja endanlega fyrir.
Auk vinnu að verkferlum heJiur, í samráði við hinn
ytri löggilta endurskoðanda, þegar verið gripið til
neðangreindra aðgerða:
a. Skýrari aðgreining starfa og verkefna.
b. Tryggt verður að þeir aðilar, sem sjá um varðveislu eigna
(Jjármuna), hafi ekki aðgang að bókun á gjalda- og tekju-
lykla.
c. Yinnuaðferðir við allar afstemmingar verða hertar.
d. Reglur um meðferð ávísana verða hertar.
e. Almennar innágreiðslur tíl lánardrottna verða stöðvaðar.
Þessar aðgerðir eru ekki tæmandi. Afram verður unnið að
skýrari verkaskiptingu og vinnslu verkferla. Innra eftirlit
verður hert til rnuna og starfsaðferðum breytt enn frekar.
Þegar nýjar reglur verða tilbúnar og samþykktar af stjórn
Símans verða þær kynntar með viðeigandi hættí.“ Bll
26