Frjáls verslun - 01.05.2003, Blaðsíða 72
Sumarið er tíminn
Flugstöð Leifs Eiríkssonar:
Gefðu þér tíma í Leifsstöð
Iframtíðarskipulagi fyrir flugstöðina er
gert ráð fyrir að byggt verði við inn-
ritunarsalinn. Þangað til að af því
verður hafa rekstraraðilar í flugstöðinni
leitað leiða til að létta á álaginu og var ein
leiðin sú að opna fyrir innritun og vopna-
leit fyrr í samræmi við sumaráætlun flug-
félaganna. Yfir sumartímann hefst því
innritun tveimur tímum fyrir brottför eða
í síðasta lagi klukkan fimm á morgnana.
Um leið er verið að bæta merkingar og
biðraðakerfi í salnum svo ferlið gangi
sem best fyrir sig.
Nýtt tölvukerfi við innrítun „Til þess að bæta þjónustu við
farþega var enn fremur tekið í notkun nýtt tölvukerfi sem flýtir
fyrir innritun farþega og gerir þeim um leið kleift að nýta tíma
sinn betur í flugstöðinni,“ segir Hrönn Ingólfsdóttir, forstöðu-
maður markaðssviðs Flugstöðvar Leifs Eiríkssonar.
„Um er að ræða SITA CUTE ijölnota tölvukerfi sem gerir
fyrirtækjum sem stunda farþegaafgreiðslu kleift að nota hvaða
vinnustöð sem er við innritun og brottför og þannig gefst
svigrúm til að hafa opin fleiri innritunarborð þegar umferð er
mikil og flýta þannig verulega fyrir innritun hvers farþega.“
Allar vinnustöðvar hafa nú verið búnar fullkomnasta vélbún-
aði sem völ er á og hefur tæknistig farþegaafgreiðslu verið aukið
verulega með tilkomu þessa nýja tölvukerfis. Á innritunar-
borðum eru nú lesarar sem geta lesið upplýsingar um farþega
af vegabréfi þeirra, af segulrönd farmiða eða af séraðildarkorti
sem farþegar hafa meðferðis. Þar eru einnig prentarar sem geta
nú prentað upplýsingar á segulrönd brottfararspjalda sem flýta
fyrir aígreiðslu farþega um borð í flugvélar. Auk þess hefur
verið komið upp segulspjaldalesara sem les brottfararspjöldin
við brottfararhliðin. Hann nemur hvort viðkomandi farþegi er
að fara í rétt flug og telur hve margir eru komnir um borð.
Kynningarstarf „Fyrir utan aðgerðir,
sem snúa beint að aðstöðu flugstöðvar-
innar, hefur kynningarstarf verið eflt
verulega,“ segir Hrönn. „Með því er
verið að gera almenning meðvitaðri um
að það sé nauðsynlegt að koma tíman-
lega til innritunar vegna þeirra breyt-
inga sem orðið hafa í umhverfinu eins
og minnst var á hér að framan. Það er
mælt með að farþegar komi til innrit-
unar tveimur tímum fyrir brottför og í
síðasta lagi einum og hálfum tíma fyrir
til þess að allt gangi hratt og vel fyrir
sig. Einn liður í kynningunni var í því fólginn að heimsækja
ferðaþjónustuaðila, s.s. ferðaskrifstofur, hótel og hópferða-
bílafyrirtæki, til að fá þau til liðs við þetta átak og sjá til þess
að þau vissu nákvæmlega um hvað væri að ræða. Það hefur
tekist mætavel en að auki hafa verið sérstakar markaðsher-
ferðir í vetur. Þær hafa m.a. falist í því að farþegar sem komu
snemma, fyrir kl. sex að morgni, fengu annars vegar frían
morgunverð og hins vegar afslátt af vörum og þjónustu í
flugstöðinni. Þetta vakti talsverða athygli í þau tvö skipti
sem við höfum reynt það, bæði sl. haust og í vor. Við
munum halda áfram markvissri kynningu og markaðsstarf-
semi á þessu sviði.“
Nýr vefur Þá hefur flugstöðin opnað nýjan vef,
www.airport.is sem er bæði á íslensku og ensku. Á
airport.is er m.a. að finna upplýsingar fyrir ferðamenn sem
ferðast til og frá Islandi. Þar er t.d. hægt að finna upplýsingar
um komu- og brottfarartíma, samgöngur, verslun og þjón-
ustu í og við flugstöðina ásamt tollareglum og reglum um
endurgreiðslu virðisaukaskatts. Einnig eru hagnýtar upplýs-
ingar um farþegaJjölda, almennt um starfsemi fyrirtækisins,
nýjustu fréttir og fleira. 31]
Brottfararfarþegum í Leifsstöb
hefur fjölgaö um 15% fyrstu fimm
mánuði ársins miðað við sama
tima ífyrra. Því hefur álag á inn-
ritun flugstöðvarinnar aukist mjög
en einnig vegna hertrar öryggis-
gæslu í kjölfar hryðjuverkanna í
Bandaríkjunum 11. sept. 2001.