Frjáls verslun - 01.05.2003, Blaðsíða 20
FJÁRDRÁTTUR í FYRIRTÆKJUM
Svaraðu þessu!
Allur þjófnaður í fyrirtækjum er í raun íjárdráttur. í hugum
flestra er þó ijárdráttur svonefnt hvítflibbabrot sem tak-
markast einvörðungu við stuld á beinhörðum peningum út af
bankareikningi viðkomandi fyrirtækis. Fjárdráttur er teygjan-
legt hugtak og við spyijum þig hvort þú teljir að efúrfarandi
dæmi séu fjárdráttur eða bara slæmt siðferði.
1. ÞÚ ERT STADDUR í MATVÖRUVERSLUN. Starfs-
maður á kassa misreiknar, sig lætur þig óvart fá 5 þúsund
krónum of mikið til baka. Lætur þú vita af því? Ef ekki. Er
þetta fjárdráttur af þinni hálfu, þjófnaður, eða bara mistök
starfsmannsins sem koma þér ekkert við.
2. VIÐSKirTAVINUR SENDIR ÞÉR ALLT OF LÁGAN
REIKNING (lægri en um var samið) vegna vörukaupa eða
vinnu fyrir fyrirtæki þitt? Lætur þú viðskiptavin þinn vita og
biður hann um að senda þér nýjan reikning sem er miklu
hærri og réttur? Ef ekki. Er þetta fjárdráttur af þinni hálfu eða
bara „sorrf; ekki þitt mál?
3. VIDSKIPTAVINUR ÞINN (ÍLEYMIR AÐ SENDA ÞÉR
REIKNING vegna vinnu sem hann hefur innt af hendi fyrir
þig. Hringir þú í hann og biður um reikninginn? Ef ekki. Fjár-
dráttur eður ei af þinni hálfu?
4. ÞIG VANTAR UÓSRTTUNARPAPPÍR í PRENTAR-
ANN HEIMA. Þú tekur eitt búnt af ljósritunarpappír heim
með þér úr vinnunni. Er þetta fjárdráttur af þinni hálfu eða
„bara þetta gamla góða“ að það sé nóg til af ljósritunarpappír
í vinnunni?
5. ÞÚ ÞARFT AÐ HRINGJA í ÆTHNGJA ÞÍNA
ERLENDIS og gerir það úr vinnunni. Er þetta þjófnaður af
þinni hálfu eða bara eitthvað sem er „innifalið" í starfinu? Þú
hringir hvort sem er svo oft til útlanda vegna vinnunnar.
6. ÞÚ ERT YFIRMAÐUR í MÖTUNEYTl. Þú tekur með þér
„afganga" úr eldhúsinu heim með þér sem og kaffi og hrein-
lætisvörur. Er þetta fjárdráttur eða eru „afgangarnir“ bara
eitthvað sem ella myndi skemmast eða vera hent?
7. ÞÚ ERT YFIR TÆKIADEILDINNI og góður viðskipta-
vinur þinn býður þér í laxveiði í þijá daga eða á knattspyrnu-
leik í Englandi. Þú þiggur boðið. Næst þegar þú kaupir tæki
skiptir þú við viðskiptavininn sem bauð þér þótt tækið sé mun
dýrara frá honum en keppinautunum. Fjárdráttur eður ei?
8. ÞÚ ERT SÍFELLT í EINKAERINDUM Á NEITNU í
vinnutímanum, kannski allt upp í tvær klukkustundir. Er
þetta Ijárdráttur af þinni hálfu eða bara þessi gömlu, „viður-
kenndu vinnusvik" sem enginn gerir veður út af? H3
gjaldkeri aldrei í frí og telji sig ómissandi. Ástæðan kann
einmitt að vera sú að hann vilji ekki hleypa öðrum að því hann
hafi óhreint mjöl í pokahorninu. Enda getur hann ekki tekið
sér frí því þá rofnar keðjan. Og hann má helst ekki verða
veikur. Ergó: Hann þarf að vera heilsuhraustur og eiga þolin-
móða fjölskyldu.
Sömuleiðis er ekki verra að forstjórar gjói svona með öðru
auganu á það hvort bókarar og gjaldkerar berist mjög á og hafi
það „einum of gott“ miðað við launin sem þeir fá. Auðvitað þarf
ekkert að vera neitt óeðlilegt við slíkt; þeir geta verið
skuldugir, áskotnast góður arfur, sparað til margra ára, átt
tekjuháan maka, unnið happdrættísvinnig og svo mættí áfram
telja. Það er ekki allt sem sýnist. Það er hins vegar ekkert að
því að forstjórar hafi sem flestar viðvörunarbjöllur í gangi þótt
þeir fyflist ekki ofsóknarbijálæði, sjái þjófa í hveiju horni og
hetji einhveijar nornaveiðar.
Byrjar Oftast sem „lán“ Flestir eru heiðarlegir! Þeir eru
örugglega mjög fáir sem setjast niður einn góðan veðurdag og
segja: „Ég ætla að stela.“ Fjárdráttur byrjar langoftast sem
skammtíma „lán“ hjá fyrirtækinu, svona til að bjarga sér fyrir
horn með greiðslur, í stað þess að fara í banka eða selja eitthvað
af eignum sínum. Vandinn er bara sá að þetta „lán“ vindur fljótt
upp á sig. Því lengur sem menn komast upp með svikin - að
stunda jakahlaupið - þeim mun erfiðara verður að greiða það til
baka. Endanlega hlýtur svona „lán“ að komast upp. Féð hefur
ekki náðst endanlega út úr fyrirtækinu heldur er um gálgafrest
að ræða. Þar sem ,jakahlaupið“ er algengasti fjárdrátturinn
torveldar það svindlið ef sú regla er höfð í heiðri að viðskipta-
menn tai send til sín greiðsluyfirlit og reki augun í það um
mánaðamót að greiðsla þeirra hafi „ekki skilað sér“. Ekki þarf
að hafa mörg orð um mikilvægi þess að fyrirtæki sendi slík yfir-
lit Raunar er ágætt að lesendur staldri hér við og fari yfir það
frá hvaða fyrirtækjum þeim berast reglulega yfirlit um greiðslu-
stöðu sína og hvað þá að þeir séu beðnir um að staðfesta
stöðuna. Sannið þið til, fyrirtækin eru færri en ykkur grunar.
Árvökull stjórnandi, sem fer gaumgæfilega og reglulega
yfir útprentanir úr bókhaldinu og hefur góða tilfinningu fyrir
tölum og samhengi þeirra, er ein allra besta vörnin gegn tjár-
drætti. Því miður eru til margir stjórnendur sem nenna ekki
að lesa talnaflóðið úr bókhaldinu sem þeir prenta út. Þar með
slaka þeir á öllu eftirliti. Hvernig vita þeir þá hvort einhvers
staðar leki út úr pípunum? Eða hvort einhvers staðar kunni
að vera falsaðir reikningar í gangi? Þeir hafa ekki hugmynd
um það!
flö falsa reikninga yfir vörukaup iitum betur á það ef sá,
sem stundar tjárdrátt, falsar reikninga og býr til útgjöld. Bók-
færslan er þessi: Kredit: út af bankareikningi fyrirtækisins og
inn á prívatreikning gjaldkerans. Debet: fært á viðkomandi
útgjaldalið.
Við fölsun reikninga er hæpið að viðkomandi verði sér úti
um reikningseyðublöð frá stórum viðskiptavini eða að hann
noti ljósrit og segi að frumrit reikningsins hafi týnsL Iiklegra er
að hann búi til og hanni nákvæma eftirlíkingu af reikningum
20