Frjáls verslun - 01.05.2003, Blaðsíða 9
Kostir gjaldeyrisuiðskiptakerfisins
• Einfaldar og ódýrar millifærslur á milli gjaldeyris-
reikninga
• Símgreiðslur til banka og fyrirtækja um allan
heim
• Gengi á rauntíma
• Aðgerðir allar á rauntíma
• Kerfið vistar allar upplýsingar og auðvelt er að
fletta þeim upp
• Hægt er að kalla fram kvittun í lok aðgerðar, á
íslensku og ensku og senda beint til móttak-
anda.
• Hægt að skoða kvittanir aftur í tfmann
• Viðskiptanúmer notenda er skráð í kerfið og því
hægt að leita eftir eigin viðskiptakerfisnúmeri
• Kvittanir eru geymdar í 7 ár skv. bókhaldslögum
• Hægt er að senda magngreiðslur úr bókhalds-
kerfum.
erlenda viðskiptavinar um leið og greiðslan á sér stað.
Otal kostir eru við þetta nýja kerfi. Til dæmis geymast
allar kvittanir í gagnagrunninum og hægt er að sækja
þær, prenta út eða senda í tölvupósti ef þörf er á. Hægt
er að senda magngreiðslur úr bókhaldskerfum fyrir-
tækja beint f gegnum Bankalínuna. í kerfinu er einnig
hægt að skrá greiðslur fram í tímann og vista þær í
greiðslubók. í þessu felst að sjálfsögðu mikill tíma-
sparnaður og hagræðing. Ekki skiptir máli hvort greidd
er ein greiðsla á mánuði eða hundrað, kerfið hentar
öllum stærðum af fyrirtækjum, enda hefur kerfið hlotið
mjög góðar viðtökur og hefur þegar verið tekið í notkun
hjá mörgum af stærstu fyrirtækjum landsins," segir
Matthildur Ágústsdóttir, deildarstjóri á fyrirtækjasviði.
„Við leggjum mikla áherslu á að þjóna viðskiptavinum
okkar vel og hluti af því er að vera alltaf í fararbroddi
hvað varðar nýja tækni og þjónustu," segir Matthildur.
„Fyrir nokkru var farið í mikla stefnumótunarvinnu
innan bankans og tekin ákvörðun um að leggja meiri
áherslu á Netið og þá þjónustu sem hægt er að bjóða
þar. Upp úr þeirri vinnu varð m.a. gjaldeyrisviðskipta-
kerfið til. Kerfið er mjög notendavænt en ég legg samt
mikla áherslu á að kenna viðskiptavinum vel á kerfið. Ég
hef það fyrir reglu að koma í fyrirtækin og kenna á
kerfið. Fyrirtæki geta síðan haft samband við okkur
hvenær sem er til að fá upplýsingar og aðstoð ef þarf.
Við leggjum gríðarlega áherslu á öryggi og Bankalínunni
fylgir alltaf hæsti öryggisstaðall sem til er hverju sinni.
Okkur er akkur i að viðskiptavinum okkar gangi vel að
nota Bankalínuna og þeir finni alla þá þjónustu sem þeir
þurfa á að halda hverju sinni," segir Matthildur.
„Þá má geta þess að nokkur fyrirtæki, sem eru stað-
sett erlendis, nota kerfið að staðaldri. Það eru sem
sagt engin landamæri í Bankalínu Búnaðarbankans,"
segir Matthildur að lokum. SD
Bryndís Kristjánsdóttir, innflutningsdeild Hagkaups/Hýsingar, og Ólína Guðlaugs-
dóttir, rekstrarstjóri innflutningsdeildar Hagkaups/Hýsingar.
HAGKAUP
Gjaldeyrisviðskiptakerfið hefur gjörbreytt okkar vinnuumhverfi. Það sparar tíma og
er mjög aðgengilegt og auðvelt í allri vinnslu. Öll leit að eldri upplýsingum er mjög
þægileg og okkur finnst kerfið góð viðbót við lánardrottnakerfi okkar.
Við erum líka mjög ánægðar með hvað það er gott að nota það til að skipu-
leggja gjaldeyriskaup fram í tímann með því að safna greiðslum í mismunandi
möppur eftir gjalddögum. Á gjalddaga sækjum við svo viðkomandi möppu og
greiðum í einni greiðslu allar kröfurnar. Þægilegra getur það ekki verið. 33
Sigrún Magnúsdóttir, deildarstjóri fjárreiðudeildar hjá Atlanta.
ATLANTA
Við hjá Flugfélaginu Atlanta tókum nýja gjaldeyriskerfið frá Búnaðarbankanum í
notkun í september á síðasta ári. Við erum sammála um að þetta var stórt skref
inn í framtíðina, þar sem þetta greiðslukerfi er miklu skilvirkara, ódýrara og upp-
lýsingar um greiðslur aðgengilegri en áður. Einnig hefur kerfið mikinn vinnusparnað
í för með sér, en núna getum við sent greiðslur og staðfestingar beint úr tölvunni
í stað faxsendinga áður.
Kerfið heldur utan um bankaupplýsingar allra erlendu lánadrottna okkar í sér-
stökum gagnabanka og t.d. fæst greiðslustaðfesting um leið og greiðsla er farin.
Hægt er að láta kerfið senda staðfestingar sjálfvirkt með tölvupósti til móttakanda
greiðslu og hægt er að fletta upp greiðslukvittunum aftur í tímann, svo eitthvað
sé nefnt.
Siðast en ekki síst býður kerfið upp á að tengjast bókhaldskerfi okkar þannig
að greiðslurnar munu bókast um leið og þær eru framkvæmdar, og komum við til
með að notfæra okkur þann möguleika.
Þetta er frábært greiðslukerfi, sem er mjög öruggt og notendavænt, við erum
í alla staði ánægð með það! S5
9