Frjáls verslun - 01.05.2003, Blaðsíða 32
Guðjón H. Pálsson, framkvæmdastjóri Islandsdeildar PR-fyrirtækisins Grey Communications International, og Egill Jóhanns-
son, framkvæmdastjóri Brimborgar. Mynd Geir Ólafsson
Eftir Vigdísi Stefánsdóttur
Evróvision var að heijast og þjóðin sat fyrir framan sjón-
varpið og beið Birgittu Haukdal og allra hinna. Það er varla
hægt að hugsa sé betri tíma til að koma skilaboðum til
þjóðarinnar allrar í einu en á þessum tíma og það notaði Brim-
borg sér til Ms og sýndi óhemju langa auglýsingu - auglýsingu
sem fyllti alveg auglýsingatímann fyrir Evróvision þannig að
enginn annar auglýsandi komst að.
Heilar sex mínútur tók að sýna auglýsinguna sem var þannig
gerð að það var hreint ekki ljóst að þarna væri um auglýsingu
að ræða. Enda mörkin óljós þegar farið er að búa til söguþráð,
mynda senur og í stuttu máli sagt, framleiða stuttmynd um
Brimborg og þá starfsemi sem þar fer fram.
Skilaboðin Skýr „Ég hef lengi gengið með það í maganum
að gera mynd um starfsemi Brimborgar og hvað við stöndum
fyrir og þá einmitt í þessu kvikmynda- eða stuttmyndaformi,“
segir Egill Jóhannsson, framkvæmdastjóri Brimborgar.
„Nákvæmlega þessa hugmynd, það er að kaupa allan auglýs-
ingatímann á undan Evróvision, fékk ég hinsvegar í febrúar,
lagði hana fyrir nokkra lykilstarfsmenn hjá Brimborg og þótti
þeim hún frekar klikkuð - en enginn vildi afskrifa hana strax.
En það var nokkuð ljóst að mikil áhætta var samhliða þessu
því að staðfesta varð kaup við RUV á öllum auglýsingatím-
anum áður en nokkur vissa var fyrir því að tækist að gera vel
heppnaða mynd sem tæki allan þennan tíma. Jafnvel 30
sekúndur geta verið lengi að líða ef ekkert áhugavert er að
gerast, hvað þá 360 sekúndur. Þar kom inn trú mín á að sam-
starfsfyrirtæki okkar, almannatengslafyrirtækið GCI-Iceland,
gæti leyst verkefnið af hendi. Það var rétt ákvörðun. En ef
einhvern tíma átti að vera hægt að gera svona hlut þá var það
að mínu mati nákvæmlega núna. I fýrsta lagi hafði ég gengið
með þessa hugmynd í maganum í mörg ár og ég var orðinn
Einkunnarorð Brimborgar: „Öruggur staður til að vera á“ endurspeglast í myndinni.
32