Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 40

Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 40
Ingimar Jónsson, forstjóri Kaupáss, þykir fljótur að átta sig og veit hvert hann stefnir með sitt fyrirtæki. Hann er ákafamaður mikill og mjög einbeittur í því sem hann gerir. Mynd: Geir Ólafsson Rokkandi hestamaður ■ ngimar Jónsson, forstjóri Kaupáss, er Bsagður ákveðinn sem stjórnandi, Bkreíjandi, fastur á sínu, fylginn sér en þó réttlátur og duglegur að hrósa fólki. Hann þykir sérlega vinnusamur, jafnvel úr hófi. Hann hellir sér venjulega á bólakaf í verkefnin og tekur hugsanlega vinnuna inn á sig, eins og sagt er. Þetta þykir þó hafa lagast með árunum. Ingi- mar veit hvert hann stefnir með sitt fyrirtæki og er fljótur að átta sig þegar þörf krefur. Hann er mjög einbeittur í því sem hann gerir en á það þó til að vera áhrifagjarn og verður þá mjög upptekinn af því sem aðrir segja um tíma eða þar til hann fer aftur inn á sína eigin braut. Hann þykir röskur og duglegur til vinnu, er jafnan ræðinn, áhugasamur og skapgóður. Samstarfsmenn bera honum vel söguna og segja að hann sé léttur, kátur og skemmtilegur. Hann er afskaplega heiðarlegur maður, hrein- skilinn, samviskusamur og metnaðargjarn og kemur ávallt til dyranna eins og hann er klæddur. „Það er mjög þægilegt að vinna með honum því að maður veit hvar maður hefur hann, hann er svo hreinn og beinn,“ segir Anna María Siguijóns- dóttir, tengill hjá Góðu fólki, sem starfaði með honum að markaðsmálum hjá Pennanum. Treður upp með Kaupásbandinu ingi mar ólst upp í barnmörgu hverfi á Sauðárkróki og lék þar ýmist knatt- spyrnu eða veiddi á bryggjunum á daginn. Hann féll vel inn í hópinn og tranaði sér hvergi fram en snemma kom í ljós hversu metnaðargjarn hann er. Jósafat bróðir hans rifjar upp að þeir bræðurnir hafi fengið sér hesta fyrst um átta ára aldurinn og þá hafi strax komið í ljós metnaður hjá Ingimar að ná langt. Aðeins 12-13 ára gamall hafi hann verið farinn að keppa í elsta flokki í hestamennsku og staðið sig mjög vel. Svipað hafi gilt um tónlistina. Faðir þeirra hafi kennt þeim ungum á trommur og Ingimar hafi strax sýnt áhuga á þeim. Hann hafi keypt sér trommusett 12-13 ára gamall og verið kominn í hljómsveit í gagnfræðaskóla. A þeim árum þurfti að fá undanþágu svo að hann gæti spilað á böllum. Ingimar starfaði við tamningar sem ungur maður og vann þá m.a. fyrir Gunnar Dungal, forstjóra Pennans. Aður en hann settist á skólabekk á Bifröst starfaði hann í frysti- húsinu á Sauðárkróki á daginn og spilaði á böllum um helgar. Ingimar hafði einnig tekjur af tónlistinni með námi sínu í Samvinnuskólanum á Bifröst og við Háskóla Islands, Rokkandi tamningamaður í framhaldsskóla og háskóla, ein- beittur, kröfuharður og metnaöar- gjarn í viðskiptum. Þannig er for- stjóranum í Kaupási, Ingimar Jónssyni, kannski best lýst. Efdr Guðrúnu Helgu Sigurðardóttur 40

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.