Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 97

Frjáls verslun - 01.05.2003, Page 97
Matthías Matthíasson, forstöðumaður hjá Eimskip: „Það er alveg klárt mál að íþróttir og við- skipti eiga mjög margt sameiginlegt og því vil ég meina að bakgrunnur minn í íþróttum hafi einnig hjálpað mér mikið." Mynd Geir Ólafsson FOLK inn á handboltaferlinum var tvímælalaust það að verða Noregsmeistari í handbolta með Elverum 1995. Síðasta vetur þjálfaði ég meistara- flokk kvenna hjá Stjörnunni. Þrátt fyrir að þjálfunin sé tíma- frek samhliða krefjandi starfi er það á sama tíma ákveðin afslöppun því maður skiptir um umhverfi og er að gera eitthvað allt annað í smá tíma. Það er alveg klárt mál að íþróttir og viðskipti eiga mjög Matthías Matthíasson hjá Eimskip Efdr Vigdisi Stefánsdóttur Eimskip er með umfangs- mikla starfsemi víða um lönd og í Englandi hefur lengi verið rekin stór skrif- stofa. Um mánaðamótin júní/júlí tekur Matthías Matthíasson, sem verið hefur forstöðumaður sjávar- útvegsþjónustu Eimskips, við starfi forstöðumanns Eimskips UK Ltd. „Eg hlakka til að takast á við nýtt og spennandi verk- efni. Þrátt fyrir að starfsemi okkar í Englandi byggi á flutn- ingum og flutningatengdri starfsemi, veit ég að þetta starf er nokkuð ólíkt því starfi sem ég gegni nú,“ segir Matthías. „Skrifstofa okkar í Englandi gegnir þýðingar- miklu hlutverki gagnvart Islandsmarkaði bæði fyrir inn- flutning og útflutning, en í Englandi eru m.a. mikilvægir markaðir fyrir fiskafurðir frá Islandi. Samtals starfa á vegum Eimskips í Englandi um 75 manns og eru þar m.a. rekin tvö dótturfyrirtæki Eim- skip UK sem starfa við flutn- ingsmiðlun í flugi og landflutn- inga. Starfsstöðvar Eimskips í Englandi eru samtals fimm. Þó svo að hlutverkið gagnvart Islandsmarkaði sé kjarni starf- seminnar þá er önnur flutn- ingaþjónusta mjög ríkur þáttur í starfseminni enda er u.þ.b. helmingur af veltu Eim- skip UK tengdur öðrum verk- efiiurn en þeim sem við koma Islandsmarkaði." Matthías hefur starfað hjá Eimskip bæði á skrifstofum og í flutningamiðstöð sam- hliða námi frá 1983. Hann var fastráðinn sem sölufulltrúi í innflutningsdeild í ágúst 1996 og varð sölustjóri í sölu milli- landaflutninga 1. október 1997. Við skipulagsbreytingar þann 1. apríl 2001 tók Matthías við starfi forstöðu- manns bíla- og tækjaþjónustu. Matthías hefur gegnt starfi forstöðumanns í sjávarútvegs- þjónustu frá júlí 2001. Eg hef varla unnið annars staðar en hjá Eimskip en ég hófstörfhjáfyrirtækinu 1983, þá 16 ára. Ég byrjaði í lönd- unargengi, var síðan nokkur ár í vöruhúsunum í gáma- tæmingu og á lyftara og sem verkstjóri áður en ég byrjaði að leysa af sem sölumaður í innflutningsdeild 1992. Sú reynsla af starfsemi félagsins, sem ég öðlaðist við þetta, hefur gagnast mér mjög vel, það sem ég lærði um starf- semina á þessum árum lærir maður hvergi betur en með því að prófa það sjálfur." Matthías er stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breið- holti og lauk B.S. gráðu í íþróttafræði frá háskólanum í Hedmark, Noregi árið 1996. Hann tók þátt í starfsþróunar- verkefni á vegum Eimskips 2000-2001 en markmið þess var að auka hæfni þátttakend- anna til að takast á við ný verkefni og störf á hveijum tíma. Um var að ræða alhliða stjórnendaþjálfun og aðra jyálfun tengda flutninga- fræðum og fyrirtækjabrag Eimskips. „Ég hef alltaf verið mikið fyrir íþróttir og spilaði lengi handbolta með IR,“ segir hann. „Eftir að ég kom heim frá námi þjálfaði ég meistara- flokk IR í tvö ár en hápunktur- margt sameiginlegt og því vil ég meina að bakgrunnur minn í íþróttum hafi einnig hjálpað mér mikið. Ég minnist oft gullkorns sem ég heyrði hjá Svala Björgvins- syni: „íþóttir og viðskipti eru mjög lik, eini munurinn er sá að maður er í jakkafötum í við- skiptum en í stuttbuxum í íþróttum. Mér finnst mikið til í þessu því að markmiðið er jú það sama, þ.e. að sigra.“ Matthías segist eiga sér mörg áhugamál en flest tengjast íþróttum á einn eða annan hátt. „Ég smitaðist af golfbakteríunni fyrir mörgum árum en hef því miður haft mjög takmarkaðan tíma fyrir það undanfarin ár en ég geri mér þó vonir um að það getí breyst í Englandi enda golf- hefðin rik þar á bæ. Þá höfum við fjölskyldan mjög gaman af því að ferðast saman og höfum við í auknum mæli ferðast innanlands undan- farin ár. Einnig höfúm við verið dugleg við að fara og slaka á í sundi, þ.e. við for- eldrarnir slökum á en strák- arnir fá útrás.“ 33 97

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.