Frjáls verslun - 01.08.2003, Qupperneq 139
„Innkaupakortið nýtist því afar vel sem rekstrarkort en það hefur hvorki árgjald
né stofngjald. Auk þess hefur það engar ferðatryggingar svo það hentar ekki þeim
sem ferðast mikið og vilja njóta ferðatrygginga."
Einföldun og hagræði
„Með því að færa smáinnkaup og fastar greiðslur, t.d. áskriftir eða reikninga, á
Innkaupakortið má einfalda allt ferlið," útskýrir Einar, „auka sjálfvirkni, bæta yfir-
sýn og stjórn á þeim og síðast en ekki síst losna við beiðnir."
Upplýsingar um færslur færast í gagnagrunn MasterCard þar sem hægt er að
nálgast þær í gegnum Netið svipað og með Corporate kortið og færa þær þaðan
beint í bókhald fyrirtækisins. „MasterCard hefur komið á samstarfi við nokkra öfl-
uga birgja um að þeir sendi ítarupplýsingar um viðskiptin rafrænt með færslum og
við vinnum stöðugt að því aðfjölga þeim," segir Einar. „Þessar ítarupplýsingar eru
í raun sundurliðaður reikningur, þ.e. nákvæmt yfirlit yfir þá hluti eða þjónustu sem
keypt var. Jafnframt liggur fyrir beiðni hjá ríkisskattstjóra þess efnis að fá þessa
reikninga vottaða sem rafræna reikninga."
Öflugar heimildarstýringar
í Innkaupakortið eru innbyggðar mjög öflugar en þó sveigjanlegar stýringar á notkun
þess. Stýringarnar er hægt að sérsníða fyrir hvert fyrirtæki með því að ákveða úttekt-
arheimild á hverja deild, hvert kort og hámarksupphæð úttektar.
ÍCELANDAIR
www.icelandair.is
Nánari upplýsingar gefur:
Kreditkort hf. - MasterCard
Ármúla 28-30,108 Reykjavík
MasterCan
www.kreditkort.is/fyrirtaeki
Sími: 550 1500 • Fax: 550 1601
@: kreditkort@kreditkort.is
á ensku. Við erum með erlenda starfsmenn sem skilja ekki íslensku og þurfum við
því að aðstoða þá við notkun færslusíðunnar."
Hvernig hafa gagnaflutningar gengið?
„Gagnaflutningar hafa gengið vel eftir að við byrjuðum að nota þá í nóvember sl.
Við lokum bókhaldinu 8. hvers mánaðar og með notkun Corporate korts og færslu-
síðunnar getum við bókað allar færslur til 18. dags uppgjörsmánaðar. Auk þess er
auðvelt að áætla fyrir kostnaði sem hefur fallið til eftir þann tíma."
Kristján Þorsteinsson, framkvæmdastjóri fjármála hjá Marel.
„Hagkvœmasti
kosturinn ístöðunni“
Hvers vegna tókuð þið upp Corporate kort?
„Þegar við grennsluðumst fyrir um það kom einfaldlega í Ijós
að það var hagkvæmasti kosturinn í stöðunni fyrir það sem við
þurftum."
Hvernig notið þið kortið?
„Við notum kortið nær eingöngu fyrir ferðaútgjöld, sem eru
stærri hluti útgjalda hjá okkur en mörgum öðrum því að starfs-
fólk okkar ferðast mjög mikið; á bilinu 90-95% okkar viðskipta
fara fram utan landsteina. Öll ferðaútgjöld starfsfólks fara á
Corporate kort og það er lykilatriði í því kerfi sem við notum til
að halda utan um ferðaútgjöld starfsmanna."
Sjálfvirkt flæði gagna lykilatriði
Svo það er ánægja með reynsluna af kortinu?
„Já, kortið hefur þjónað okkar þörfum vel, ekki síst færslusíðan
og sá möguleiki að geta flutt með rafrænum hætti sundur-
liðaðar upplýsingar um útgjöld hvers og eins starfsmanns
beint inn á viðskiptareikning hans í bókhaldi Marel, frekar en
að þurfa mánaðarlega að eiga við eina heildarupphæð sem
erfitt var að stemma af við fyrirliggjandi gögn.
Þetta hefur gert gæfumuninn hjá okkur. Við létum á sínum
tíma sérsmíða fyrir okkur sérstakt kerfi sem heldur utan um öll
ferðagögn starfsmanna; öll áætlanagerð og eftirlit með
ferðum starfsmanna fer fram í þessu kerfi, en þetta sjálfvirka
flæði upplýsinga um ferðir starfsmanna inn í bókhaldið er
auðvitað lykillinn að því að það gengur svona vel."
Flýtir frágangi uppgjöra
Hvernig hefur gagnaflutningur gengið?
„Þetta hefur gengið snurðulaust fyrir sig. Og í bókhaldinu er
ánægja með að færslurnar berast beint inn í bókhaldskerfið,
það einfaldar allt eftirlit og afstemmingu og flýtir frágangi
uppgjöra."
Hvernig gekk innleiðing kortsins?
„Hún gekk vel, þær breytingar sem við þurftum að gera á vinnuferli okkar voru
smávægilegar."
Hver er reynsla ykkar af þjónustu MasterCard?
„Þjónustan er góð. Þau vandamál sem hafa komið upp hafa verið leyst jafnóðum."
Mynduð þið mæla með þessu korti?
„Já, við erum mjög ánægð með færslusíðuna og getum tvímælalaust mælt með
henni. Hún hefur sparað okkur mikinn tíma." 33
Hver er reynsla ykkar af þjónustu MasterCard?
„Við höfum mjög góða reynslu af henni. Það hefur ævinlega
verið brugðist hratt við öllum fyrirspurnum okkar og beiðnum.
Til dæmis hefur alltaf verið brugðist hratt og vel við beiðnum
starfsmanna sem staddir eru erlendis."
Myndir þú mæla með þessu korti við aðra?
„Auðvitað er mjög mismunandi hvað hentar hverju fyrir-
tæki, en þetta kort hentar okkur mjög vel, svo jú, ég get
mælt með því."
139