Morgunn


Morgunn - 01.06.1966, Side 12

Morgunn - 01.06.1966, Side 12
6 MORGUNN látizt trúa þeim, en afleiðingin verður ævinlega hrópandi vantrú í reynd. Iðulega heyrast þær raddir, að kirkjur séu illa sóttar, og þær séu að missa áhrifavald sitt yfir hugum manna. Fyrir þessu er einhver hæfa og má eflaust rekja það til margra or- saka. En um það er ég samt öldungis viss, að brennandi þorsti manna eftir fræðslu í andlegum efnum er naumast miklu minni nú en oft áður. Ef kirkjurnar eru miður sóttar nú en áður, stafar það ekki sízt af því, að sú trúfræðsla og uppbygging, sem þar er látin í té, nær hvorki tökum á hug- um eða hjörtum eða skilningi fólksins. Áður fyrr gengu menntaðir menn á undan alþýðu manna um kirkjusókn. Nú er það undantekning að sjá slíka menn í kirkju nema við jarðarfarir. Hvernig stendur á því? Þeim finnst trúarboðun prestanna úrelt. Og visst mark er það, að hvar sem hinir svo nefndu rétt- trúnaðar berserkir flytja boðskap sinn, flýja menn og forð- ast þá eins og andlegan svartadauða, bæði sökum leiðinleg- heita framsetningarinnar og eins vegna þess, að auðfundið er tómahljóðið í kenningum þeirra. Réttilega finna menn, að þeir hafa lítið að bjóða. Menn, sem hungrar og þyrstir eftir sannleikanum, þýðir ekki að ala á skrælþurrum kenni- setningum. Menn biðja um lífsins brauð, ekki steinrunnar beinagrindur úreltra guðfræðikerfa. Hið broslegasta við marga þessa svo kölluðu rétttrúnaðarmenn er það, að með þessu halda þeir að þeir séu einhverjir útvaldir musteris- riddarar og verndarar trúarinnar, þar sem sannleikurinn er sá, að þeir verða öllu lifandi trúarlífi til niðurdreps, bregð- ast skyldu sinni við sannleikann, gera sér enga rellu út af því, hvort þeir fara með rétt eða rangt mál, heldur velja þá léttustu leið í starfi sínu og dáðlausustu, að stagla bara kennisetningar eftir öðrum skilningslaust eins og páfa- gaukar. Hvað yrði sagt um efnisvísindamann, sem aldrei rann- sakaði neitt verkefni sjálfur frá rótum, heldur léti sér nægja að halda fram eldgömlum fræðikenningum sem óskeikul-
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.