Morgunn - 01.06.1966, Side 27
MORGUNN
21
verið en frábært fjarhrifasamband milli miðilsins í Bretlandi
pg mín suður í Ástralíu. Ég svara því til, að sú tilgáta er
mér algerlega ófullnægjandi, þegar ég hugsa um þetta sam-
band, hvernig það var og hve hárnákvæm mörg atriðin voru.
Vandamál miðilssambandsins.
Vér skulum skoða nokkur af vandamálum miðilssam-
bandsins.
Þegar framliðinn notar fjarhrifasamband við miðilinn, og
trúlegt er, að þá aðferð noti framliðinn, sem mjög er orðinn
fjarlægur jarðarsviðinu, þá er hætta á því að miðillinn, sem
litla þekkingu hefur á efninu, sem hinn framliðni er að ræða
og takmarkaðan orðaforða til að túlka málið, mistúlki þarna
eitt og annað. Einnig er hætta á því, að eigin hugmyndir mið-
ilsins ruglist saman við hugmyndirnar, sem hinn framliðni
er að reyna að koma á framfæri. Þegar hinn framliðni sjálf-
Ur er „viðstaddur“ og tekur þá stjórn á miðlinum (með eter-
inn sem tengilið milli sín og hans), virðist minni hætta á því,
að hugmyndir miðilsins rugli orðsendingar hins framliðna,
°g það er ástæða til þess að ætla, að þessa sambandsaðferð
hoti einkum þeir framliðnir, sem enn eru ekki komnir langt
frá jarðnesku ásigkomulagi. Margir þeirra hafa sennilega
ekki mikið markvert að segja oss. Meginvandamál sam-
bandsins, hver sambandsaðferðin sem notuð er, er samt það,
oð sálrænir hæfileikar miðilsins sjálfs kunna að vera að verki
hieðan hann er í transi-dásvefni. Hugur hins dásvæfða mið-
ns kann oft að vera í fjarhrifasambandi við einn eða annan
hinna jarðnesku fundargesta, og með hjálp svokallaðs hugs-
onalesturs kann miðillinn að koma fram með atriði, sem
beim fundargesti einum var kunnugt um, eða honum einum
pg hinum framliðna, sem talinn er vera kominn að samband-
*nu. Þá Þá verður spurningin þessi: Hvaðan kemur þessi
vÚneskja? Er framliðinn maður hér að verki, og kemur vitn-
eskjan þaðan gegn um miðilinn, eða fær miðillinn vitneskj-