Morgunn


Morgunn - 01.06.1966, Page 78

Morgunn - 01.06.1966, Page 78
72 MORGUNN að koma, hefði kveikt á týru frammi í eldhúsinu, en ljósið slokknað, er hún var komin að baðstofustiganum. „Sástu ljósið?“ segir mamma. „Hún Palla er sjálfsagt að koma.“ Ég játti því. Og við hlustuðum bæði ofurlitla stund. Svo fór ég aftur að spila á harmonikuna. Um það bil 10 mínút- um seinna heyri ég að komið er inn í bæinn. Kallar Pálína systir mín framan úr göngunum og biður mig að kveikja ljós undireins, það sé gestur með sér, Sigríður Björnsdóttir, sem ekki rati inn í þessu svarta myrkri. Ég flýtti mér að kveikja á týrunni og fór með hana niður stigann og á móti þeim, svo að þær sæu til að rata inn göngin. Ekki var meira talað um ljósið, sem við mamma sáum á undan þeim. En við vorum sannfærð um, að einhver ósýnilegur gestur hefði þá verið að tilkynna okkur komu þeirra. Þegar spilin týndust. Þótt sjaldan sé spilað á heimilinu, eigum við þó venjulega tvenn spil, önnur góð, sem notuð eru þegar gestir koma, hin léleg, sem við hjónin leyfum barnabörnunum að leika sér að. Nýju spilin geymi ég jafnan inn í læstum skáp, svo krakk- arnir nái ekki í þau. En þegar þau taka að slitna, fá börnin þau, en ný eru keypt í staðinn og læst inni í skápnum, þar sem ekki ganga aðrir um en við hjónin. Dag nokkurn, síðla vetrar, komu þrjár konur til þess að spila við Sigríði konu mína. Var ég beðinn að ná í spilin úr skápnum. Af einhverri rælni taldi ég spilin og kom þá í ljós, að 7 spil vantaði. Þetta þótti okkur að vonum harla undar- legt og óskiljanlegt. Varð það úr að lokum, að við fengum önnur spil að láni. Ég leitaði vandlega í skápnum, en sú leit bar engan árangur. Ég fletti spilunum enn á ný og athugaði hvað vantaði, og voru það spil af öllum litum. Ekki fleygði ég þó spilunum, heldur lét þau aftur í skápinn. Nú líður af sumarið og fram á næsta vetur. Þá er það einhverju sinni, að ég opna skápinn og rekst þar á spilin, sem
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.