Morgunn - 01.06.1966, Qupperneq 36
30
MORGUNN
knýja framliðna til sambands við okkur og að hægt sé að
knýja mann til að svara bréfi. Þeir, sem gefa okkur kost á
sambandi við sig, gjöra það af fúsum viija. Og það er ástæða
til að ætla, að þeim framliðnu þyki vænt um að finna, að við
hugsum ástúðlega til þeirra. En taumlaus sorg jarðnesku
vinanna, hin óstöðvandi sorg, getur aftur á móti tafið fyrir
þroska þeirra framliðnu og bundið þá jörðunni.
Er nokkur hætta samfara miðUssambandinu? Það er lík-
lega einhver hætta samfara allri sannleiksleit, hvort sem er
í heimi efnis eða anda. Við eigum það á hættu, að það verði
ekið yfir okkur, þegar við göngum yfir þvera götu. Samt
sitjum við ekki alltaf blýföst heima. Sá sem feliur í trans,
leggur sig að einhverju leyti undir annað vald, utanaðkom-
andi vald. En þetta er ekki gert þekkingarlaust, út í bláinn.
Oftast er miðillinn, eða sá sem gefur sig undir miðilsdá, und-
ir vernd, annað hvort síns æðra sjálfs eða framliðinna, sem
starfa frá hinni hliðinni. Auðvitað eru til hrekkjóttir eða ili-
viljaðir framliðnir menn, eins og slíkir menn eru til hér á
jörðu. En þeirra vegna verður ekki hætt við sambandið.
Hvað segið þér um spíritismann? Ég er ekki ákaflega
hrifinn af honum. Mikill meirihluti þeirra, sem sækja miðils-
fundi, er mjög fáfróður um dulda hæfileika mannshugans.
Með miklum barnaskap álíta þeir, að öll fyrirbrigðin stafi
óhjákvæmilega þaðan, sem þau þykjast koma frá, eða álíta
fyrirbærin koma frá þeim, sem þeir óska að þau komi frá.
En þetta er fjarri öllum sanni, og mjög mikilli gagnrýni- og
athugunargáfu þarf að beita við sálrænu fyrirbrigðin. Mögu-
leikar á sjálfsblekkingu og sefjun eru þvi nær takmarka-
lausir, og þótt ég efi ekki, að mörg atriði séu sönn, er óhugs-
andi, að á opinberum skyggnisamkomum og miðilsfundum
sé hægt að greina hið sanna frá hinu ósanna, flokka niður
fyrirbærin og meta gildi þeirra.
Við þá, sem hafa misst kæran vin og þrá að leita sambands
við hann á þessum leiðum, langar mig að segja þetta: Gerðu
slíka tilraun með vandlega völdum miðli á einkafundi, og
reyndu að kynna þér af lestri áður, hverjar hættur kunna