Morgunn


Morgunn - 01.06.1966, Page 22

Morgunn - 01.06.1966, Page 22
16 MORGUNN sem var hans, er horfið, minningin ein er eftir hjá okkur. Og bráðum kemur röðin að okkur sjálfum. Ef til vill munu fá- einir vinir minnast okkar nokkra stund, en þeir fara líka af jörðinni, og við hverfum í hóp milljónanna, sem enginn telur og enginn man fremur en þær hafi aldrei verið til. Er þessu þannig farið? Sé svo, þá er vissulega tímabært að örvænta ... og þá er full ástæða til að gefast á vald ör- væntingarfullri óvissu Thomasar Hardys. 1 lok hinnar miklu skáldsögu hans, „Tess D’Urbervilles“, segir Tess við Angel Clare, eiginmann sinn, síðustu augnablikin áður en hún er tekin og líflátin: „Segðu mér, Angel, heldurðu að við hittumst aftur eftir dauðann? Segðu mér það.“ Hann kyssti hana til þess að þurfa ekki að svara. Hún barði niður andvarp sitt og sagði: „Ó, Angel, ég veit að þetta merkir: nei. En ég þrái svo heitt að fá að sjá þig aftur, svo heitt, svo heitt! Er það satt, Angel, að ekki einu sinni við sjáumst aftur, sem elskumst þó svo heitt?“ Russell lávarður er sennilega frægastur þeirra lærdóms- manna, sem trúa því, að dauðinn sé endir alls. Hann kvað einu sinni svo að orði, að hann byggði hús sitt á hinum „traustustu undirstöðum ósveigjanlegs vonleysis". Og það er ekki langt síðan hann kvað svo að orði, að hann „sæi enga ástæðu til að gera ráð fyrir því, að alheimurinn hefði minnsta áhuga fyrir óskum vorum og vonum“. Vér hljótum að dázt að hinu heimspekilega hugrekki Russells, en ekkert bendir til þess, að hann hafi gefið alvarlegan gaum þeim sönnunargögnum, sem hefðu getað gefið honum traustan grundvöll bjartsýni. Ef það er satt, að maðurinn sjálfur farist í dauða líkam- ans, skulum vér játa undandráttarlaust, að vér lifum í heimi, sem er ömurlega og óskaplega ranglátur við marga menn, heimi, sem hlýtur að fylla oss harmi og skelfingu, þegar vér hugsum um endalokin. Sumir menn eru fæddir til ömurlegra ævikjara. Þeir verða að berjast við alls konar mótgang, þján- ingar, skort, harðrétti og vonleysi á allar lundir. Og sumir
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.