Morgunn


Morgunn - 01.06.1966, Page 42

Morgunn - 01.06.1966, Page 42
36 MORGUNN um mannssálarinnar, sem þarna hófust, og þau próf. Mc- Dougall og Rhine-hjónin einkum unnu að, snerust fyrst og fremst um spurninguna um framhaldslíf eftir líkamsdauð- ann, og að hinn ungi háskóli og forseti hans, dr. Few, skyldi vera svo frjálslyndur að ljá þessum rannsóknum fullan stuðning, því enda þótt spíritisminn nyti þá ört vaxandi fylgis um allan hinn menntaða heim, sálarrannsóknafélög hefðu þá starfað um áratugi, og margir heimskunnir vísinda- menn sannfærzt um framhaldslífið eftir dauðann, áttu þó þessar rannsóknir engan veginn upp á pallborðið innan veggja háskólanna, né heldur í hinum íhaldssama félagsskap raunvísindamannanna. Við rannsóknirnar á miðlum og starfsemi þeirra í sálfræði- deild Duke háskólans kom brátt í ljós það, sem ýmsir fröm- uðir sálarrannsóknanna höfðu þegar bent á og haldið fram, að sú vitneskja varðandi framliðna menn, sem miðlarnir fengju og segðu frá, mundi ekki vera til þeirra komin, sem venjulegar skynjanir skynfæranna, heldur mundi þar vera um fjarhrif (telepathy) í einhverri mynd að ræða. Spurning- in var sú, hvort þessi fjarhrif stöfuðu frá lifandi mönnum eða hinum látnu. Þeirri spurningu var ekki unnt að svara, nema með umfangsmiklum og ítarlegum rannsóknum. Og sú rannsókn hlaut að verða tvíþætt. 1 fyrsta lagi að sanna af eða á, hvort fjarhrif ættu sér raunverulega stað. Og í öðru lagi, ef f jarhrif reyndust vera raunveruleiki, hvort þau ættu sér aðeins stað milli lifandi manna, eða hvort sum fyrirbæri mannlegrar reynslu væru þannig vaxin, að engin leið væri að skýra þau á þá lund, heldur hlyti þar að vera um fjar- hrifasamband frá látnum mönnum að ræða, er þá um leið væri sönnun fyrir framhaldi lífsins og persónuleikans eftir líkamsdauðann. Dulsálfræðirannsóknir þær, sem fram hafa farið við Duke háskólann, fyrst undir forystu McDougall og síðan dr. J. B. Rhine og konu hans óslitið frá árinu 1927, hafa, eins og kunnugt er, einkum beinzt að því, hvort fjarhrif (telepathy) ættu sér stað í raun og veru. Og þetta hefur nú tekizt að J
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.