Morgunn


Morgunn - 01.06.1966, Blaðsíða 56

Morgunn - 01.06.1966, Blaðsíða 56
50 MORGUNN meister & Wain. Mér var sýndur lyftikrani, sem ég átti að stjórna. Hann stóð þarna á hafnarbakkanum, tröllslegur ásýndum, líkt og eitthvert fornaldarskrimsli, og skammt frá honum var að sjá hús nýbyggt. Ég virti þetta tæki vand- lega fyrir mér og sá, að á hlið þess var lítið áfast spjald, sem á stóð: Nurnberg 1910. En nú bregður svo við, að mér þykir grípa mig einhver beygur við að stíga upp og setjast í sætið, og gat ekki hugsað til þess að vera þar einn. Þetta sagði ég félögum mínum á hafnarbakkanum. Að vísu gat ég þess ekki beinlínis, að ég væri hræddur, en sagði, að ég vildi hafa þangað mann með mér. Er það og líka föst venja, að sá, sem stjórnað hefur slikum krana áður, sé hinum nýja við- takanda til hjálpar og leiðbeiningar þrjá fyrstu dagana. Þykir mér þá einn verkamannanna svara: „Farðu bara upp í. Sá gamli situr þar og bíður eftir þér.“ Ég þóttist nú klöngrast upp í sætið. Og það stóð heima. Þar sat gamall maður með derhúfu á höfði, eina af þessum sixpensurum, sem verkamenn venjulega gengu með á þeim árum. Þetta var fremur lágvaxinn maður, en saman rekinn. Mig furðaði á því, hvað hann var ellilegur, og hefði hann raunar átt að vera hættur störfum fyrir elli sakir. Hann talaði mikið, en ég átti bágt með að skilja hann vegna þess, að hann var mjög hásróma og röddin brostin. Hann leið- beindi mér mjög skilmerkilega um alla gerð kranans, og sérstaklega var það eitt atriði, sem hann brýndi fyrir mér og endurtók hvað eftir annað: „Mundu það, að það er hægt að snúa krananum í hring á skífunni. Þú skalt nota þér það, maður minn.“ Á þessu stagaðist hann hvað eftir annað. Að sjálfsögðu hafði ég lært um þennan útbúnað á vélfræðiskól- anum. En ég hafði aldrei unnið á slíkum krana. Skyndilega þótti mér gamli maðurinn hverfa mér sjón- um og ég vera sjálfur tekinn að stjórna krananum. Ég renndi rúðunni frá, eins og vant er að gera, til þess að geta rekið höfuðið út og séð betur í kring um mig. Þrír menn stóðu niðri í lest skipsins. Og ég sá þá mjög greinilega. Og ég var einmitt að láta mjög stóran og þungan járnkassa siga niður 4
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Morgunn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.