Morgunn


Morgunn - 01.06.1966, Page 66

Morgunn - 01.06.1966, Page 66
60 MORGUNN Svo fór allt og fram kom, að Sveinn varð biskup og Er- lendur efldist og mannaðist og eignaðist Guðríði dóttur Þor- varðs. Og er hann reið til konukaupa kom hvolfuskúr mikil, en áður var glatt sólskin, er þeir nálguðust túnið. Erlendur þessi varð sýslumaður, og hélt lengi Rangárþing. Meðal barna hans og Guðríðar var Vigfús hirðstjóri Er- lendsson. Fleiri hinna íslenzku biskupa eru taldir verið hafa for- spáir og forvitrir, þó ekki verði það nánar rakið hér. ÓLI ÍSFELD Hann var einn þeirra manna hér á landi á öndverðri 19. öld, sem mestar sagnir fara af vegna fjarskyggni og for- sagnahæfileika. Réttu nafni hét hann Eyjólfur Ásmunds- son. Hann mun verið hafa sunnlenzkur í föðurætt að minnsta kosti og senniiega úr Landeyjum. En sagnir segja, að hann hafi alizt upp á Húsavík við Skjálfanda. Ungur fer hann til Kaupmannahafnar og lærir þar smíðar hjá meistara þeim, sem nefndur er Jónas Isfeld, og hefur sennilega verið maður islenzkur. Þar breytti hann nafni sínu, og nefndist jafnan eftir það Oli Isfeld. Hann mun hafa flutzt alfari heim til Islands að líkindum laust fyrir 1790, gerðist verzlunarstjóri á Hánefsstaðaeyrum við Seyðisf jörð, tók síðan að sér brenni- steinshúsin á Akureyri, en er þau brunnu 1797, fór hann til Húsavíkur. Árið 1819 var trébrúin á Jökulsá á Dal orðin svo léleg, að hana þurfti að endurbyggja. Fékk þá sýslumaður- inn í Norður-Múlasýslu, Páll Melsted eldri, Isfeld til þess að taka að sér brúarsmíðina. Varð þetta til þess, að Isfeld settist að á Austurlandi. Hann andaðist að Þingmúla 1832, en þar var hann að smíða kirkju. Kviknaði í bænum, og er talið, að Isfeld hafi ekki þolað reykjarsvæluna, enda þá orðinn brjóstveill. Segir sagan, að hann hafi komizt út um bað- stofugluggann, en hlaupið aftur inn í eldinn og svæluna til þess að bjarga örvasa konu, er Ingibjörg hét. Tókst björg- unin, en Isfeld hné niður í hlaðvarpanum og var þegar ör- endur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.