17. júní - 17.06.1937, Síða 12

17. júní - 17.06.1937, Síða 12
Bjartsýni. Væri ég spurður þess, hvern af eiginleikum Jóns Sigurðssonar mér þætti mest um vert, myndi ég hiklaust svara: bjartsýnina — trúna á ís- lenzku þjó&ina. Enginn íslendingur hefir verið bjartsýnni en hann. Eng- inn glöggskyggnari á auðæfi íslenzkrar moldar og miða. Enginn sá betur þá orku, sem með þjóðinni bjó og barátta hans leysti úr læðingi. Jón Sig- urðsson efaðist aldrei um, að íslenzka þjóðin væri fær um sjálf að skipa sínum eigin málum. Hann var þess fullvís, að ísland væri svo gagn-auðugt og þjóðin svo vel til manns, að aUir íslendingar gætu búið við sæmileg lífs- kjör, efnalega og andlega. Hugsjónir Jóns Sigurðssonar eru nú sumar orðnar og aðrar að verða að veruleika. Nærfellt 20 ár eru liðin síðan sjálfstæði Islands og fullveldi var yfir- lýst og viðurkennt. Á þessu árabili hafa stórfelldari breytingar og framfarir orðið á flest- um sviðum, en nokkru sinni fyrr. Innan fárra ára taka íslendingar sjálfir í eigin hendur meðferð þeirra málefna, sem þeir til þessa hafa eigi haft sjálfir að öllu leyti. Þjóðskólahugmynd Jóns Sigurðssonar er að verða að veruleika. At- vinnudeildin tekur til starfa í næsta mánuði og háskólabyggingin kemst undir þak í sumar. Tún og garðar stækka með hverju ári. Fossar og jarðhiti þjóna fólk- inu. Iðnaðinum fleygir fram. — Fiskitegundir, sem áður voru taldar eng-

x

17. júní

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 17. júní
https://timarit.is/publication/707

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.