17. júní - 17.06.1937, Blaðsíða 34

17. júní - 17.06.1937, Blaðsíða 34
Það sumrar. Loksins var farið að hlýna í veðri. Veturinn hafði verið óvenju kaldur og langur. Hann hafði beinlínis teygt sig svo langt inn á svið sumarsins, að það gegndi furðu, hve lengi það hafði þolað slíkan ójöfnuð. Hið fátæka, íslenzka sumar, sem ekkert mátti missa af sínum stutta tíma, svo að því entist aldur til þess að koma :í framkvæmd sínu heillaríka gróðurstarfi, hafði enn sem fyrr sýnt þessa óskiljanlegu þolinmæði hins eignalausa og réttindasmáa gagnvart ofríki og yfirtroðslum. En nú er það vaknað til fulls og búið að taka við völdunum. Líttu upp í loftið. Það iðar af örsmáum hitaeiningum í kappsömu samstarfi, sem vekur bergmál hjá moldinni. Hún fullvissar sig um alvöru sumarboð- skaparins og byrjar að tæta í sundur klakann og gleypa hann. Og sól og sunnanvindur sópa burtu seinustu sporum þessa langa, óréttláta vetrar og setja hinn fagnandi lífssvip sumarsins á hina marg-misþyrmdu jörð. Og þetta hér í Reykjavík. Hvernig heldurðu að það sé í sveitinni, þar sem lækir og ár taka þátt í endurnýjunarstarfinu. Þar er nú eitthvað fjörugra. Stórir snjóskaflar grotna sundur á örskömmum tíma og lækirnir hoppa með þá skellihlæjandi og kolmórauðir í framan niður brekkurnar, en árn- ar spýta stóreflis jökum langt á sjó út, eins auðveldlega og maður spýtir út úr sér sveskjusteini. Og moldin og lyngið og grasið. Allt breytir svip á ein- um slíkum degi og anganin stígur upp úr jörðinni að vitum fólksins og skepnanna, sem blessa sumarið. Til voru þeir, sem ekki hafði þótt þessi vetur langur, Björn Björnsson

x

17. júní

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: 17. júní
https://timarit.is/publication/707

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.