17. júní - 17.06.1937, Page 13

17. júní - 17.06.1937, Page 13
ii isvirði, eru nú veiddar og seldar fyrir milljónir króna árlega. Atkvæðis- réttur og kjörgengi allra fullveðja manna og kvenna er nú loks veittur og viðurkenndur, án tillits til efnahags eða þjóðfélagsaðstöðu. Lýðræði og þingræði er þar með tryggt, meðan þjóðin gáir þess, að vernda þetta sitt dýrmætasta hnoss. Með atkvæðum sínum og félagssamtökum hefir alþýða til sjávar og sveita brotið af sér atvinnuhelsi og auðkúgun. Hún er bjartsýn, eins og Jón Sigurðsson. Hún er ráðin í því, að nytja gögn og gæði lands og sjávar,. skapa sjálfri sér og íslenzku þjóðinni bjarta framtíð. Vel sé hverjum þeim manni og konu, hverjum þeim félagsskap, s'em vinnur að því, að gera hugsjónir Jóns Sigurðssonar að veruleika. Óska ég því ungmennafélagsskajmum giftu og gengis, nú á 30 ára afmæli hans, og minnist þess starfs, er hann hefir af hendi leyst.

x

17. júní

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: 17. júní
https://timarit.is/publication/707

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.