17. júní

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

17. júní - 17.06.1937, Qupperneq 17

17. júní - 17.06.1937, Qupperneq 17
15 ráði við utanríkismálanefnd, þá tilhögun á meðferð utanríkismála, inn- anlands sem utan, sem bezt kann að henta, er íslendingar neyta upp- sagnarákvæðis sambandslaganna og taka alla meðferð málefna sinna í eigin hendur. Tillögur um mál þessi sé síðan lagðar fyrir Alþingi". Samvinna Norðurlanda er hugsjón, sem margir starfa að í þessum löndum. Til eru þeir menn, er ætla, að uppsögn sambandslaga-samn- ingsins bryti bág við þessa hreyfing. En svo ,er eigi. Það horfir öfugt við. Einn af hyrningarsteinum þeirrar stefnu er sá, að hún standi utan alls stjórnmálasambands. Enginn hefir lagt ríkari áherzlu á þetta meginat- riði en forsætisráðherra Dana. — Ryðjum þeim hömlum úr vegi að vor- um hluta, er staðið geta fyrir samhug frændþjóðanna. Garður er granna sættir. Svo er gengið frá ákvæðum sambandslaga-samningsins, að ýmsir málsmetandi menn hafa talið mjög tvísýnt, að nokkru sinni náist lög- legur meirihluti fyrir sambandsslitum og tekið fram, að til þess þurfi meiri eining, en oss er gefin hversdagslega. Satt er það, að engin sundrung má um þetta mál verða, ef duga skal. Munum atkvæðagreiðsluna í Saar, sem allur heimur dáðist að.Blás- um ekki að sundrungarglæðunum. Drepum þeim á dreif. Sameinum kraftana. Hér er stórt takmark öllum æskulýð að að vinna til fullra úrslita með fullkomnum og fögrum sigri. Island fyrir íslendinga.

x

17. júní

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 17. júní
https://timarit.is/publication/707

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.