17. júní - 17.06.1937, Blaðsíða 42
4o
of almennt. Það er hlutverk ungmennafélaganna að fá þessu breytt. Þau
gætu meira gert að því, að gangast fyrir smáferðalögum til fjalla. Margir
fjallatindar eru sjálfkjörnir stáðir fyrir ungmennafélagsmót, því að æsk-
unni er gott að koma ,,þar, sem víðsýnið skín“. Og félagsmenn eiga að
auka sér lífsgleði og skapa sér heilbrigði og þrótt með iðkun íþrótta, eink-
um sunds.
Menn mega ekki gera sig ánægða með það eitt, að læra svo sundtök-
in, að þeir geti fleytt sér nokkrar lengdir sínar. Það er að vísu byrjunar-
skrefið, en takmarkið er annað og meira: að skapa lífsglatt og dáðríkt
fólk. Því takmarki verður naumast náð með öðrum betri ráðum en sund-
æfingum, þar sem skilyrðin til sundæfinga eru þannig, að þau hæfa
þroskastigi nemendanna. Litlar sundlaugar og grunnar eru góðar á byrj-
unarskeiði, en ónógar fyrir fullorðið fólk, sem náð hefir nokkurri leikni.
Það er því nauðsyn á, að til séu stórar sundlaugar og djúpar, og yrðu þær
þá auðvitað að vera þar, sem skilyrðin eru bezt, frá hendi náttúrunnar,
svo að þær yrðu ekki allt of dýrar, og þar, sem þær eru bezt í sveit
komnar.
Slíkar sundlaugar væru sjálfkjörnir staðir fyrir ungt fólk til þess
að æfa þar sund og mæla þar sundkunnáttu sína og getu, með því að bera
sig saman við aðra. Þær yrðu þýðingarmiklar menningarstofnanir.
Fáir staðir á landinu eru jafn sjálfkjörnir fyrir slíka sundlaug, sem
við hverina hjá Reykjum í Ölfusi, bæði vegna náttúruskilyrða og annarra
staðhátta. Náttúruskilyrðin og aðstaða eru svo góð, að eigi má við annað
una, en hefjast þegar handa.
Ungmennafélag Ölfushrepps hefir ákveðið að koma upp slíkri sund-
laug í nánustu framtíð. Er ætlazt til, að laugin verði að stærð 50x12 metr-
ar að flatarmáli og eigi minna en 3,5 m. djúp, svo að hlaupa megi á kaf
af allháum palli. Vegna dýpisins verður þetta svo mikið mannvirki, að
ofætlun er ungmennafélaginu einu, og er því þess að vænta, að allir unn-
endur manndóms og menningar leggi því lið.