Morgunn - 01.12.1970, Side 8
86
MORGUNN
Jiví, sem við verðum öll að sætta okkur við að „dagleiðinni er
dauðinn nær í dag heldur en hann var i gær“. — Og hann
vcrður bað einnig á morgun.
Það er ekki alls kostar rétt, að við fæðumst öll snauð inn i
þennan lieim og förum einnig allslaus héðan. Tíminn er sá
höfuðstóll, sem okkur er öllum i hendur fenginn Joegar við fæð-
ingu. Og Jiroski og vöxtur andans og persónuleikans, sem tími
okkar hefur gefið okkur tækifæri til að öðlast, er sú auðlegð,
sem við flytjum með okkur héðan að lokum.
Þessi höfuðstóll timans er okkur fenginn lil afnota og um-
ráða. Við megum veT ja honum að mestu leyti að eigin vild og
berum sjálf ábyrgðina á Jiví, hvernig J)að ferst okkur úr hendi.
En svo einkennilega hefur höfundur lífsins hagað Jiessari
vöggugjöf okkar allra, að okkur er það alla stund hulið hversu
miklum hluta okkar afmarkaða ævitima við erum þegar búin
að eyða, og hvað mikið við eigum eftir af honum til ráðstöfun-
ar á ókominni tið. Margan hefur það eggjað til óhóflegrar
eyðslu og sóunar, að hann vissi, að þykkur bunki af seðlum
var i veskinu i barmi hans og jafnvel álitleg innstæða í bank-
anum að auki. Hann mundi hafa sýnt meiri gætni, ef hann
hefði vitað cg hugsað um það, að brátt kæmi að Jtví, að hann
hefði cytt sinum síðasta pening, og ætti engan varasjóð.
Ég hygg því, að við megum vera mjög þakklát fyrir J)að, að
höfundur lifsins hefur af vizku sinni látið okkur vera það hulið,
hvað okkur er útmælt af dögum og það, hversu mikið við eig-
um ónotað af tíma okkar hér hverju sinni. Þetta er ein af þeim
undursamlegu leiðum drottins allsherjar til J^ess að kenna okk-
ur að fara betur mcð timann og sóa honum ekki i fánýta hluti
og jafnvel skaðlcga sjálfum okkur og öðrum, og hafa það jafn-
an hugfast, að hann gctur verið Jnotinn fyrr en varir.
Ekki ætti að þurfa að vekja athygli á svo augljósum hlut,
°g þó ætla ég að gera það, að gildi og liamingja lifs þíns fer
engan veginn fyrst og fremst eftir því, hversu langur tími
þér er skammtaður, heldur eftir hinu, hvernig þú notar tima
þinn og hvað þér raunverulega verður úr honum. Það er fyrir-
hafnarlítið og auðvelt fyrir þig að sóa tíma þinum í leti og