Morgunn - 01.12.1970, Blaðsíða 22
100
MORGUNN
fá svör við þeirri spurningu, hvort sú orka, sem þar kemur
fram, lúti lögmálum efnisheimsins eða ekki.
Og svo heppilega vill til, að þær tilraunir, sem gerðar hafa
verið i þessum efnum, eru þannig úr garði gerðar, að þær eiga
að geta fyllilega gefið svar við þeirri spurningu. Hér þarf i
raun og veru ekki annað við framkvæmd tilraunanna en að
breyta til um hin ytri skilyrði og verkanir og ganga úr skugga
um, hvort það hefði nokkur áhrif á niðurstöður tilraunanna.
Ef niðurstöður tilraunanna urðu aðrar og öðru visi, ef hinum
ytri, efnisbundnu aðstæðum var breytt, hlaut það að leiða til
þess, að menn styrktust i þeirri skoðun, að þarna væri einhver
tegund efnisorku að verki. Ef aftur á móli varð hin sama niður-
staða varðandi teningana, hvort sem þessum ytri skilyrðum
var breytt eða ekki, þá lá í augum uppi, að hér hlyti að vera
um einhverja þá tegund orku að ræða, sem frábrugðin er þeirri
efnisorku, sem við viðurkennum og þekkjum.
Fyrsti samanburðurinn, sem gerður var varðandi ])etta efni,
kom mönnum mjög á óvart. Þegar við hinar fyrstu tilraunir
með teningsköstin kom það ótvírætt í ljós, að áhrif sálarork-
unnar reyndust sterkari, þegar tveim teningum var varpað í
senn, heldur en þegar aðeins var einum kastað. Hins vegar
gerði bæði sá, sem lilraununum stjórnaði, og hinn, sem tilraun-
irnar voru gerðar á, eðlilega ráð fyrir því, að auðveldara væri
að beita þessu dulda afli við einn tening í einu en tvo samlimis.
Tilraunirnar sýndu þvert á móti, að hin sama tala á teningun-
um kom oftar upp hlutfallslega, ef varpað var tveim teningum
í senn, en sjaldnar, ef aðeins var einum kastað. Tilraunir gerð-
ar á þann veg að kasta aðeins einum teningi í senn, voru yfir-
leitt ekki endurteknar mjög oft i hverri lotu. Stafaði það eink-
um af því, að þeir, sem i hvert skipti áttu að reyna að hafa
áhrif á það með sálarorku sinni, hvaða hlið teningsins kæmi
upp, voru miklu tregari til endurtekinna tilrauna, ef aðeins var
um einn tening að ræða. Þeim leiddist blátt áfram svo einhad
tilraun til lengdar. Af þessum ástæðum hafa þvi aðeins verið
gerðar þrjár verulega langar tilraunalotur með einn lening að-