Morgunn - 01.12.1970, Blaðsíða 16
94
MORGUNN
þannig, að menn geta lýst því nákvæmlega, er þeir vakna.
Þekktastir að þessu hér á landi voru Hermann Jónasson á
Þingeyrum og Drauma-Jói á Langanesi. I3eir fóru víða um i
svefninum, leituðu að töpuðum kindum eða týndum hlutum og
sögðu til þeirra, svo að menn gátu síðan gengið að þeim á þeim
stöðum, sem þeir vísuðu til.
Þetta virðist ekki aðeins ótvírætt sýna, að sálin er til, sem
sjálfstæður veruleiki. Hún sýnist einnig geta yfirgefið efnis-
líkamann á meðan hann sefur og horfið þangað aftur áður en
hann vaknar. Af þessu leiðir rökrétt þá hugsun, að sálin geti
einnig haldið áfram að lifa og starfa eftir að hún hefur yfir-
gefið líkamann fyrir fullt og allt við dauða hans, úr því hún
getur starfað óháð honum i þessu lifi.
Fyrir þeirri staðreynd hefur einnig tekizt að færa óteljandi
rök og mörg þeirra svo ljós og sterk, að þeir, sem vottar hafa
að þeim fyrirbærum orðið, eða reynt þau sjálfir, telja þau
jafngilda óvéfengjanlegum sönnunum. Fg nefni í þessu sam-
handi skyggna menn, sem hvað eftir annað sjá framliðna menn
og heyra þá tala við sig. Suma þeirra þekkja þeir, aðra ekki, en
geta lýst þeim svo nákvæmlega, að kunnugir eru ekki í minnsta
vafa um, hverjir þeir eru. Ég nefni drauma, þar sem látnir
birtast, tala við sofandann og segja honum ýmislegt það, er
enginn lifandi maður gat um vitað, en síðar sannast að var satt
og rétt i alla staði. Ég nefni einnig ósjálfráða skrift, og hin svo-
kölluð víxlskeyti (Cross correspondance), sem fela i sér afar-
sterka sönnun fyrir framhaldslífinu. En ekki er tími lil að lýsa
því nánar hér. Margt fleira madli nefna, sem eindregið bend-
ir í þessa sömu átt.
Nátengt þeim fyrirbærum og rannsóknum, sem sýna fram-
haidslíf sálarinnar eftir líkamsdauðann er síðan staðreyndin
um samband þeirra, sem hér lifa við þá, sem látnir eru. Þetta
samband kemur einna gleggst og áþreifanlegast fram í starf-
semi hinna svonefndu miðla, þar sem jafnvel sál hins fram-
liðna virðist taka sofandi likama miðilsins í sína þjónustu um
stundarsakir og tala blátt áfram af vörum hans. Gallinn við
þetta samband enn sem komið er, er einkum sá, að erfitt er