Morgunn


Morgunn - 01.12.1970, Page 18

Morgunn - 01.12.1970, Page 18
96 MORGUNN hafa talstöðvar í bílnum og geta rætt við bílstjóra í öðrum bíl- um langt í burtu. Það minnir mann ósjálfrátt ó f jarhrifin á milli lifandi manna, er hugir þeirra talast við, án þess að efnislikam- inn eigi þar beinan þátt í. Það eru nefnilega alls ekki bílarnir sjálfir, sem talast við. Sumir bílstjórar fara vel og gætilega með bílinn sinn, aðrir ekki. Þannig er og um okkur, að við förum misjafnlega hyggilega og gætilega með líkamann, og endist hann okkur af þeim sökum oft skemur en skyldi. Að lokum kemur að því, að bíllinn bilar, svo að ekki verður við hann gert, liættir með öllu að geta gengið og er fluttur í bílakirkjugarðinn. En við það gufar bílstjórinn engan veginn upp né verður að engu. Hann yfirgefur aðeins að fullu og öllu hinn ónýla bíl. Hann hverfur þá inn á eitthvert annað starfs- svið, eða ef hann langar sérstaklega til, getur hann fcngið sér annan bil og haldið sama starfinu áfram á nýjan leik. lig Iiygg, að svipað fari um okkur, þegar likaminn deyr. Við yfirgefum hann blátt áfram, þegar ekki er unnt að nota hann lengur, og hefjum nýtt líf og nýtt starf á öðru sviði tilverunn- ar. Við erum að vísu að því leyti öðru vísi sett en bílstjórinn, að við getum ekki keypt okkur annan jarðlíkama, af þeirri ein- földu ástæðu, að sálarlausir starfhæfir líkamir eru ekki til hér á jörð. Sumir austurlandaspekingar Iialda því þó fram, að ef okkur langi sérstaklega til þess að halda starfi i efnislíkama áfram ó jörðinni, getum við endurfæðzt í nýjum likama, þ. e. a. s. fæðzt á ný sem lítil börn. Til þeirrar kenningar treysti ég mér ekki til að taka ákveðna afstöðu hér, enda er þessu erindi ekki ætlað að fjalla um það mál. En hvað segir kirkjan, hvað segja prestarnir um þessi mál? Hver er afstaða þeirra til framhaldslífsins, sambandsins við látna ástvini og til sálarrannsóknanna yfirleitt? Satt að segja virðist hún vera mjög óákveðin og mjög misjafnt hljóðið í prestunum um þessi mál. Sumir þeirra, bæði hér og erlendis, hafa gerzt hinir ötulustu og áhrifamestu stuðningsmenn þessa málefnis og jafnvel brautryðjendur. Svo var til dæmis hér á landi um prófessor Harald Níelsson. Og honum fylgdu margir gáfuðustu og áhrifamestu prestar landsins og hafá gert fram á
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.