Morgunn - 01.12.1970, Page 29
MORGUNN
107
sem myntir ýmiskonar. Þunnar plötur úr tré eða pappa ba:ði
ferhyrndar og hringlaga. Þessi tæki voru reynd um tima jafn-
hliða teningunum, en reyndust ekki heppileg og árangurinn
ekki teljandi umfram það, sem búast mátti við, ef hending ein
réði. Varð það til þess, að þeim tilraunum var brátt hætt og
teningar notaðir eingöngu. En nú fyrir skömmu hafa tilraunir
með flata hluti verið hafnar að nýju. Hafa að þeim starfað
prófessor R. H. Thouless við háskólann í Cambridge og Eliza-
beth McMohan i lilraunastöð Duke háskólans. Hafa þau bæði
á þennan hátt náð verulegum árangri með tilraunum sínum.
Árangurinn sýnist jafnvel hafa orðið betri en þegar þau not-
uðu teninga. En sá samanburður er þó enn ekki nægilega
nákvæmur. Hann er einnig nokkrum erfiðleikum bundinn
vegna þess, að um flata hluti gilda ekki sams konar útreikning-
ar um líkindi fvrir þvi að ákveðin tala komi upp. Ekki hefur
heldur ennþá tekizt að geta gert allar ytri aðstæður tilraunanna,
bæði með teninga og flata hluti, svo nákvæmlega eins, að sam-
anburðurinn verði algjörlega fullkominn.
Án efa má haga rannsóknum PK fyrirbæra á miklu fleiri
vegu en hér hefur verið lýst. En með tímanum munum við afla
okkur þeirra tækja og þess útbúnaðar, sem þarf til þess að geta
gert nægilega alhliða rannsóknir á þessum fyrirbærum í því
skyni að geta gert fullkomnari grein fyrir þeim. Enn má segja,
að við séum á byrjunarstigi í þessum efnum.
Vart getur leikið nokkur vafi á því, að PK orkan er ekki efn-
islegt fyrirbæri. Engar lilraunir styðja þá kenningu, heldur
bera þær þvert á móti sterk vitni gegn henni. Það er þegar
fyrir hendi marghliða en þó samhljóða vitnishurður um það, að
það sem PK tilraunirnar hafa leitt i ljós, samrýmist ekki lög-
inóhim aflfræðinnar. Og þetta hefur verið leitt í ljós með strang
visindalegum aðferðum.
Niðurstöður þessara tilrauna styður einnig lieilbrigð skyn-
semi, ef að er gáð. Ef PK orka á að geta haft áhrif á fallandi
tening, verður það að gerast á ákveðnum stað bæði í rúmi og
tima og þau hrif verða að beina teningnum inn á þá braut, að