Morgunn - 01.12.1970, Page 70
148
MORGUNN
Síðan segir hann við mig- „Ég sé, að hér er ekld um æxli að
ræða. En það eru þrengsli í æð í heilanum hérna megin“ —
og hann bendir á staðinn. — „Blóðrásin er þess vegna of lítil,
en hún er ekki stöðvuð. Þetta er að lagast, en það tekur nokk-
urn tima. En þú mátt treysta þvi alveg, að hún kemst til með-
vitundar aftur og á eftir að lifa í mörg ár“.
Ég vil ekki segja, að ég hafi trúað þessu fyllilega. Það var
ekki unnt í einni svipan að átta sig á því, að þetta væri annað
en einhver leiðsla eða draumur. Það, sem hafði sterkust áhrif
á mig á því augnabliki var ekki það, sem hann sagði, heldur
hitt, hvernig hann sagði það, sú sannfæringarvissa, sem var að
baki orðanna og hikleysi fullyrðingarinnar undir þessum
kringmnstæðum og eins og á stóð.
Fáum dögum seinna vaknaði konan min til meðvitundar.
Eftir um það bil vikutíma hafði ég heimt hana aftur heim. Að
vísu var henni ekki algjörlega batnað, og læknir kom heim svo
að segja daglega til þess að fylgjast með líðan hennar. Nú er
liðinn fullur aldarfjórðungur siðan þetta gerðist. Allan þann
tíma hefur heilsa konunnar minnar verið eftir atvikum góð,
þótt segja megi, að hún hafi ekki náð að öllu leyti sömu heilsu
og áður.
Ég get að sjálfsögðu ekki fært sönnur á það, að hinn óvænti
heilsubati konu minnar hafi verið Andrési Andréssyni að
þakka eða þeirri dulræðu gáfu, sem hann var gæddur. Hitt tel
ég mig geta fullyrt, að læknar sjúkrahússins áttu engan bein-
an þátt í þeirri lækningu. Sumir kunna að halda því fram, að
það hafi verið tíminn og sá græðslumáttur, sem i sjálfum
mannslíkamanum býr, sem þar hafi verið að verki. Ur þessu
verður aldrei skorið. Hvaða skýringu, sem menn aðhyllast í
þeim efnum, verður hún aðeins reist á trú, en ekki sönnun.
Hitt verður aftur á móti ekki dregið i nokkurn vafa, vegna
þess að það er staðreynd, að hin skyggnu augu Andrésar sáu
rétt, bæði um það, að ekki var þarna um æxli í heila að ræða
og einnig um hitt, að sjúkdómurinn mundi fljótlega batna
þvert á móti því, sem bæði læknar og aðrir bjuggust við. Eng-
inn maður, sem á annað borð þekkti Andrés Andrésson, sann-