Morgunn


Morgunn - 01.12.1970, Side 74

Morgunn - 01.12.1970, Side 74
Nýjar bækur um miðla og merkileg fyrirbæri ☆ Stöðugt berast nú fréttir og auglýsingar um bækur, sem ým- ist eru nýkomnar út eða von er á núna fyrir jólin. Allt bendir til þess, að bókaútgáfan hér muni halda áfram að fara vaxandi, svo sem verið hefur undanfarið. Það sýnir og sannar það enn einu sinni, að söguþjóðin lætur sér ekki nægja að glápa á sjón- varp og hlusta á útvarpið, þó þessi tæki helli yfir hana fréttum og fróðleik í myndum og máli allan guðslangan daginn, söng og sögum, músik af öllu mögulegu tagi og ómögulegu, auk leik- rita og kvikmynda, sem sumar eru dágóðar, þótt of margar fjalli um það, sem hollara er flestum að sjá ekki en að sjá og heyra ekki heldur en að heyra. Ég er viss um, að jafnvel hund- arnir á mörgum heimilum mundu urra að verstu glæpamynd- unum og hárin rísa á skrokknum, ef þeir færu að leggja í vana sinn að glápa á þær. En þeir gera það ekki, vilja blátt áfram hvorki sjá þær né heyra. Og er það enn ein sönnun þess, hvað hundar eru vitrir og að mennirnir mættu enn eitt og annað af þeim læra. Ýmsir spáðu ]>ví, að þessi voldugu fjölmiðlunartæki mundu útrýma bókunum. Menn mundu hætta að kaupa þær og lesa. íltgefendur mundu draga saman seglin. Og rithöfundarnir þá að sjálfsögðu leggja frá sér penna og pappir, sitja auðum hönd- um eða fara í eyrarvinnu og sennilega hætta að hugsa, að minnsta kosti upphátt. Ekkert af þessu hefur rætzt, sem betur fer. Þvert á móti fær- ist bókagerðin með þjóðinni í aukana. Og þetta stafar engan veginn af því, að útvarpið sé svo andlaust og leiðinlegt, að menn gefist upp við að horfa á það og hlusta. Hlustendum og
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.