Morgunn - 01.06.1980, Blaðsíða 6
4
MORGTJNN
Þannig hljóðar frásögnin af þeim atburði, sem mestum og
gleðilegustum straumhvörfum olli alls þess, sem saga Jesú
Krists geymir. Án upprisu Krists hefði jólaljósið ekki náð að
skína í gegnum myrkrið.
Kjarni kristinnar boðunar er þessi: dö Kristur er uppris-
inn. Og afleiðing þess er aftur sú, sem Páll postuli orðar svo
vel, að fyrst Guð hefur uppvakið Drottin, svo mun hann oss
upp vekja fyrir siim kraft. Þeir eru margir, sem hafa spurt
líkt og Job forðirm: „Þegar maður deyr, lifnar hann þá aft-
ur?“ Og þeir hafa ekki síður tekið undir framhald orða hans:
„Þá skyldi ég þreyja alla daga herþjónustu minnar“. Það
er svo mikill munur að eiga þessa vissu. Það er það fyrir þá,
sem verða íyrir vonbrigðum af jarðlífinu. Það er það fyrir þá,
sem líða sjúkdóma og böl. Það er það fyrir hvern einasta
einstakling, sem horfir á eftir ástvini sínum út fyrir hinn
jarðneska sjóndeildarhring. Fyrst var ódauðleikatrúin aðeins
hugboð, en það var eins og það væri sterkast í sálum þeirra
manna, sem mesta áttu hugargöfgi. En svo kemur Kristur,
og með upprisu sinni opnaði hann hinn jarðneska sjóndeild-
arhring og svo óumdeilanlega, að í hugum lærisveina hans
varð hugboðið að staðreynd og vonin að vissu. Hann gaf
þeim svarið, fullvissuna um framhald mannlegrar tilveru
handan við dauðans ós, að „vort líf sem svo stutt og stopult
er, þaÖ stefnir á œðri leiÖir. Og upphiminn fegri en auga sér,
mót öllum oss faÖminn breiðir.“ Þessi er sá boðskapur, sem
kristin trú flytur við hvert mannslát og endranær. En hverj-
ir voru fyrstu boðberar hans. Hverjir voru það sem voru á
leið út að gröfinni um sólaruppkomu? Hverjir komu að hinni
opnu gröf og fóru aftur til að segja lærisveinunum og Pétri
hin miklu fagnaðartíðindi? Það voru nokkrar konur, sem
voru boðberar nýrrar aldar, fluttu þá fregn, sem hlaut að
breyta allri hugsun í mannheimi. En þær urðu ekki lengi
einar um reynslu sína. Kristur fór nú að birtast uppxrsinn,
og æ fleiri urðu vitni að upprisu hans þá 40 daga, sem liðu
frá páskum til uppstigningardags. — Nýja testamentið
kallar þessa menn votta að upprisu Krists. Þegar valinn var