Morgunn - 01.06.1980, Blaðsíða 24
22
MORGUNN
og að fólk vilji ekki skilja þetta og sumir halda því fram að
ekki sé til líf eftir þetta líf. íig hef einnig orðið vör við að
það er eins og fólk sem orðið hefur fyrir dulrænni reynslu,
vilji ekki tala um það af ótta við að verða fyrir aðkasti fólks.
Það er hins vegar vissa mín, að ekkert sé að óttast í þessu
sambandi, ef maður hyggir þetta á góðum grundvelli — á
bjargi, en ekki möl.
„Heilir og sælir heldri menn . . .“
— Nú sérZ þú sýnir. Getur þu greint frá því hvers eSlis
þessar sýnir eru?
— Ég man sérstaklega eftir einni sem ég sá nú á aðfanga-
dagsmorgun. Ég var gestkomandi í húsi hér í Reykjavík, og
allt í einu hurfu mér allir veggir og ég sá undurfagra flug-
vél koma í áttina til mín. Ég var glaðvakandi, og ég sá að það
voru sex menn í flugvélinni, sem var fögur eins og regnbog-
inn. Allir þeir sem voru í vélinni voru framliðnir stjómmála-
menn og einn þeirra, sem hafði orð fyrir þeim talaði við
mig og bað mig fyrir þau skilaboð, að ef menn töluðu saman
af meiri einlægni og bróðurhug, þá gengi betur að finna
lausn á þeim vandamálirm sem þjóðin stendur frammi fyrir
í dag.
Þessi maður sem talaði við mig er einn af frægustu íslensku
stjórnmálamönnum sem uppi hafa verið, og áður en flug-
vélin hvarf á braut þá hvað hann þessa vísu:
Heilir og sælir heldri menn
við höfum á ykkur gætur
þið eruð að rífast áfram enn
alla daga og nætur.
— Vísan var að vísu nokkuð lengri, en niðurlagið man
ég því miður ekki í augnablikinu, en ég á þetta allt saman
skrifað niður einhvers staðar.