Morgunn - 01.06.1980, Blaðsíða 11
RAGNHILDUR OLÖF GOTTSKÁLIÍSDÓtTIR 9
mikinn eril, reyndi Ragnhildur að hafa tíma aflögu fyrir
fjölskylduna. Barnabömin hennar 22 að tölu nutu hennar
ekki síður en börnin. Hún var hinn sterki miðdepill stórrar
fjölskyldu og miðlaði sínum farsælu áhrifum til allra, með-
an þess var nokkur kostur, og til hinstu stundar má segja,
að Ragnhildur væri gefandi, gefandi öðrum af því sem henni
var gefið. Langömmubörnin hennar eru orðin mörg, þannig
að afkomendahópurinn nálgast nú fimm tugi, og alla um-
vafði hún elsku sinni.
Eggert lést í júní 1968. Ragnhildur hélt heimili áfram, en
síðustu 5 árin hefur hún verið sjúklingur að mestu rúmföst
og oft þjáð, en kvartaði aldrei. Kjartan hélt heimili með henni
og reyndist henni einstakur sonur. Þau nutu og góðrar
hjálpar svo margra, sem þau þakka í dag og sérstaklega hef
ég verið beðinn að nefna þar Karólínu Jónsdóttur, konuna
sem kom þar daglega og hugsaði svo einstaklega vel um
Ragnhildi.
Árin urðu henni æ erfiðari. Hún vissi vel hvert stefndi,
en hún talaði ekki um dauðann, heldur hið nýja lif, sem
hún þráði. Hún vissi, að það er staðreynd, sem við sungum
á jólum: „Að kveldi dags skuluð þér vita, að Drottinn kem-
ur, og að morgni skuluð þér sjá dýrðina Drottins.“ Hún beið
þess að kallið kæmi á ævikveldi, svo að hún mætti ganga
inn í dýrð hins eilífa morguns, þar sem allt er orðið nýtt.
Hún gerði það á 3. degi jóla.
f þeirri trúarvissu er hún einnig kvödd, þeirri öruggu trú,
er segir með orðum helgrar bókar: Guði séu þakkir, sem
gefur oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesúm Krist.
Þannig kveðja börnin hennar og ástvinir þeirra. I5annig
kveðja allir sem nutu hennar, vináttu hennar og hæfileika.
Góðum Guði er þakkað allt, sem hann í henni gaf, og hann
er beðinn að blessa hana og varðveita um eilífð.
Við segjum öll: „Far þú í friði,
friður Guðs ]iig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.“
T Jesú nafni amen.