Morgunn - 01.06.1980, Blaðsíða 66
64
MORGUNN
Að kynnast hinu innra sjálfi þínu og ljúka þannig upp dyr-
um fyrir afrekum, sem engan dreymir um.
Höfundur bókarinnar AÐ SIGRA ÓTTANN hefur leyst
hlutverk sitt vel af hendi. Þetta er maður sem hefur aukið
visku sína og mátt sinn til þess að sigrast á örðugleikum lífs-
ins á langri ævi og nú vill hann deila reynslu sinni með
þeim, sem kæra sig um það. Niðurstaða hans hefur orðið sú
sama og vitrustu manna fornaldar, en hann sýnir okkur
hvemig forn viska á brýnt erindi við okkur á tímum gjör-
breytts heims, því manneðlið hefur minna breyst en kring-
umstæður og umhverfi.
Ingólfur Árnason hefur íslenskað þessa bók með ágætum.
Ég vil þó aðeins leyfa mér að henda á að þvi styttri sem
íslensk orð geta verið því betra, að mínum dómi. Ég myndi
því heldur kjósa orðið djúpviíund en undirvitund og heldur
vanmetakennd en minnimáttarkennd, en síðarnefndu orðin
notar Ingólfur nokkuð til skiptis. Skuggsjá hefur hér enn
bætt við mjög gagnlegri bók, sem gæti komið þeim að stór-
kostlegu gagni, sem hana vilja færa sér í nyt.
Emest Gordon:
DAUÐABOÐIRNAR VIÐ KWAI-FLJÓT.
Þýðandi: Séra Gunnar Bjömsson.
Útgef.: Bókaútgáfan Salt hf., Reykjavik.
Homo sapiens. Já, ekki verður þvi neitað að maðurinn sé
vitiborinn vera. Samt blasir við hverjum manni hve illa þess-
um vitsmunum er viða beitt á hnettinum. Andlegur þroski
okkar stendur langt að baki vitsmununum. Af þvi leiðir, að
gífurlegum hæfileikum er beitt gegn mannkyninu sjálfu. Við
höfum framfarir með síauknum hraða á næstum öllum hugs-
anlegum sviðum og megum við þakka fyrir margt af því.
Allar þessar framfarir og uppfinningar kosta að sjálfsögðu
mikið fé og hefur sjónvarpið sýnt okkur í hinum’ frábæru
þáttum sinum um tækni og vísindi hvemig þessu fé er varið.
En sá stóri galli er á gjöf Njarðar, að miklu meira fé er eytt