Morgunn - 01.06.1980, Blaðsíða 40
38
MORGUNN
öðrum til góðs, og sökum gáfna og hæfileika er árangurinn
mjög mikill. tJlfur var eftirsóttur læknir hér í Reykjavík og
streymdu að honum störf og peningar. En eins og Jón, hefur
hann litlar mætur á efnishyggju og auðsöfnun. Þegar hann
varð þess vísari að erfitt var að fá lækna til að stunda störf
sín víða í afskekktum héruðum, kvaddi hann kjötkatlana i
Reykjavík og gerðist héraðslæknir á norð-austurlandi, þar
sem hann iðulega varð að fara ferða sinna á skíðum. Úlfur
Ragnarsson er hámenntaður læknir í sálfræðivísindum og
geðlækningum. En það hefur ekki stöðvað hann í þvi, að
kynna sér mjög rækilega hin sálrænu vísindi, sem læknis-
fræðin lætur eins og séu ekki til og er þekking hans í þeim
efnum ótrúlega víðfeðm. Hann er einnig listamaður, bæði
skáld og málari, svo næg eru viðfangsefnin. Eins og háttur
er viturra manna, hefur menntun hans ekki gert hann þröng-
sýnan, heldur þvert á móti viðsýnan, því það er sameigin-
leg reynsla sannleiksleitenda, að þegar nýrri þekkingu er
náð, blasir ævinlega við ný og ókönnuð svið. Sannleiksleitin
er því óendaleg, a. m. k. á mannlegan mælikvarða. Sann-
menntaður getur því sá einn kallast, sem gerir sér grein
fyrir því, hvað hann veit lítið.
En Úlfur læknir er ekki einungis listamaður, heldur einnig
dulspakur og hálærður í þeim efnum. Eins og lesendur muna
var hann um skeið forseti SRFÍ meðan hann bjó hér í Reykja-
vík og naut félag okkar þá hæfileika hans í ríkum mæli.
Engan mann hef ég heyrt jafnmarga Akureyringa tala
fallega um og Jón fyrrv. skólastjóra Sigurgeirsson. Enda
verður það hverjum manni skiljanlegt sem kynnist honum.
Víðtæk og merkileg störf að skólamálum hafa engan veginn
nægt þessum starfsama manni. Hann hefur um árabil verið
þátttakandi og hvatningarmaður hvers konar félaga, sem
hafa þjónustu við meðbræður sína að markmiði. Jón virðist
frá upphafi hafa gert sér grein fyrir því, að það að gefa
af þreki sínu og tíma öðrum til heilla sé hið sanna takmark
mannsins meðan hann dvelur hér á jörðinni. Hann er því
auðugur maður í þess orðs besta skilningi. Hann hefur með