Morgunn - 01.06.1980, Blaðsíða 15
DULARFULLI SKUGGINN . .
13
Ég var á valdi óskaplegra sterkra tilfinninga: hryggðar,
ótta, efa, þreytu, skelfingar, ráðleysis og losts.
Ég gaf þeim Gargan og Markham fyrirmæli um að valda
vinum Mary Jo ekki ótta þessa nótt og lét þá koma með mér
að ferjustaðnum.
Það var búið að loka ferjuflutningum fyrir nóttina og þá
varpaði ég mér i einhverju æði til sunds, synti yfir um og
var í annað sinn sinn næstum drukknaður. Síðan hélt ég
heim til hótels míns og og féll saman á rúmið i herberginu
mínu.
Það er ekki hægt að lýsa með orðum þeirri hræðilegu kvöl
og því hugarangri sem mér býr í brjósti sökum þessa sorg-
lega atburðar.“
Þetta gerðist fyrir tiu árum. En nú víkur sögunni til
nútímans. Breska dagblaðið News of the World gekkst
fyrir því að fjórum helstu miðlum Englands var boðið á
sambandsfund í þeim tilgangi að ná sambandi við hina látnu
stúlku, Mary Jo, til þess að fá rétt svör við því hvað hefði
í raun og veru gerst þessa örlagaríku nótt, sem varpaði bletti
á mannorð Edwards Kennedys.
Svörin, sem fram komu á þessum sambandsfundi með New
Jersey-málhreimi Mary Jo, voru þessi:
1. Kennedy var ekki elskhugi stúlkunnar.
2. Kennedy vissi ekki að hin 28 ára Mary Jo var í aftur-
sætinu í bílnum hans, þegar hann steyptist niður í átta feta
djúpt vatnið eftir samkvæmið á Chappaquiddick-eyju í Massa-
chussetts í Bandaríkjunum.
3. Kennedy var að halda lilífiskildi yfir annarri konu, þeg-
ar hann síðar hélt því fram að þau Mary Jo hefðu yfirgefið
samkvæmið saman.
Meðal annars sem fram kom á þessum athyglisverða sam-
bandsfundi var alvarleg aðvörun til hins 47 ára gamla öld-
ungadeildarmanns, sem nefndur hefur verið sem líklegt for-
,setaefni við næstu forsetakosningar Bandarikjanna:
„Ég sé hættur steðja að honum. Ég sé dauða, skyndilegan