Morgunn - 01.06.1980, Blaðsíða 41
RITSTJÓHARABB
39
starfi sínu safnað þeim auði, sem hvorki mölur né ryð fá
grandað. Hann er, eins og tllfur læknir, einnig dulspakur
maður og það er því engin tilviljun, að þessir tveir ágætis-
drengir hafa orðið vinir og samstarfsmenn.
Fyrir nokkrum árum komu þeir á fót eins konar hvíldar-
gistihúsi á Laugalandi við Akureyri. Þessi gististaður var
öðrum ólíkur að því leyti, að þarna var ekki einungis hugs-
að um líkamlega hvíld, heldur einnig sálarlega. Þarna var,
auk þess sem venjuleg gistihús bjóða, fyrir hendi hugleið-
ingarstundir daglega, jókaleikfimi, lifandi tónlist, erindi um
andleg mál o. fl.
Þetta er einmitt það sem okkur hefur skort. Efnislega njóta
Islendingar yfirleitt nú betra lífs en nokkru sinni á ævi þess-
ar þjóðar hér norður við Dumbshaf og virðast vinsældir sól-
arferða til suðrænna landa sýna hve fjárhagur almennings
hefur batnað mikið. En þrátt fyrir sólarlandaferðir er hér
enn skortur á þeirri innri sól sem mestu máli skiptir og ein-
ungis er hægt að veita með andlegum aðferðum. En það eru
einmitt þessar andlegu sólarferðir, sem þeir Jón og tJlfur
hafa verið að reyna að bjóða landsmönnum; þannig að þær
komi ekki aðeins líkamlega að gagni, heldur einnig andlega.
Þeir sem nutu dvalar hjá þeim Jóni og tJlfari á Laugalandi
voru sammála um það, að þeir fóru þaðan ekki einungis út-
hvíldir, heldur endurhresstir andlega og bjartsýnni en þeir
höfðu verið árum saman.
Það verður því öllum gleðiefni, að þeir
félagar skuli nú hafa enn getað komið
upp slíkum stað í hinni dásamlegu feg-
urð Borgarfjarðar. Á Laugalandi flutti
ég nokkur erindi fyrir dvalargesti og hef-
þess nú aftur verið farið á leit við mig að koma í sumar að
Varmalandi og geri ég það að sjálfsögðu með gleði. Þori ég
að ráðleggja hverjum manni vikudvöl á Varmalandi, ef hann
metur einhvers uppbyggingu. Þykist ég einnig vita að verði
Nýr gististaður
og hvíldar á
Varmalandi í
Borgarfirði