Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Page 10

Morgunn - 01.06.1980, Page 10
8 MORGUNTí og einnig á sjálfa sig og starf sitt. Hún var ekki ein þeirra sem telja sig hafa eignast allan sannleikann. Hitt þráði hún, að sannleikurinn mætti eiga hana, að hún mætti þjóna hon- um. Hún talaði alltaf með varúð um lækningastarf sitt. Hún fann, að hún var í nád við hið mikla og óræða, en að hún sjálf var sem sandkom á sjávarströnd. Hún vissi, að hún var ekki ljósið, en hún þráði að mega lýsa, og við, sem til henn- ar þekkjum, vitum, að hún var eins og það er orðað um Jó- hannes skírara, að hún var „brennandi, skínandi lampi.“ Hún mætti ekki alls staðar skilningi, og hún fann að sums staðar var grunnt á fordómum, en hún hélt alltaf ótrauð áfram 1 öryggi þess manns, er veit sig hafa heiðvirðan skjöld og hreina samvisku. Þeir sem gengið hafa svipaða leið og Ragn- hildur fór, þeir hafa stundum verið gagnrýndir í nafni vís- indanna, en þar hafa staðreyndir talað öðru máli. Þeir hafa einnig verið gagnrýndir í nafni trúarinnar, en einmitt sterk og einlæg Kriststrú og auðmýkt Ragnhildar Gottskálksdótt- ur ættu að vera slíkum ásökunum hæfilegt svar. Þar var allt unnið í nafni hins upprisna Drottins, til að mikla hann. Bænum hennar var heint til hans. Því var treyst, að hann myndi gefa kraftinn, og það traust varð sér ekki til skammar. Jafnframt því að vera farvegur lifskrafts og heilbrigði, þá var Ragnhildur einnig, eins og ég nefndi hér fyrr, hinn mikli vottur upprisunnar og ódauðleikans. Ötrúlega margir hlutu á fundum hjá henni þá vissu, sem þeir þráðu að eign- ast, um líf eftir líf, og kannski hafa enn fleiri öðlast þar þann stein, sem vantaði i trúargrundvöll þeirra til þess að hann yrði öruggur. Og allt leiddi þetta til hans, sem allir hlutir eru fyrir gjörðir, til hans sem er Drottinn ára, alda og eilífð- ar, til trúar á Krist, hann sem á páskum leiddi í ljós líf og ódauðleika. Það varð Ragnhildi ómetanlegur stuðningur, hvað Egg- ert, eiginmaður hennar, sýndi starfi hennar mikinn skiln- ing og sömuleiðis fjölskyldan öll. Enda var það eins og eitt af börnum hennar sagði við mig: „Það voru stanslausar sann- anir fjorir því, að það sem hún sagði var rétt.“ Og þrátt fyrir

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.