Morgunn - 01.06.1980, Page 12
ÆVAR R. KVARAN:
DULARFULLI SKUGGINN I LÍFI
EDWARDS KENNEDYS
Þegar þetta er skrifað er talað í heiminum meira um einn
mann en alla aðra. Hann er aðalumræðuefnið í öllum lönd-
um. Það er Edward Kennedy, bandaríski öldungadeildarþing-
maðurinn, bróðir hinna frægu bræðra Johns og Roberts
Kennedys, sem báðir féllu fyrir morðingja hendi. Annar var
forseti hins mikla stórveldis, Bandaríkjanna, en hinn dóms-
málaráðherra. Ástæðan til þess að yngri bróðir þeirra, Ed-
ward Kennedy, er nú á hvers manns vörum er sú að það er
engu líkara en flestir Bandaríkjamenn beinlínis ætlist til þess
af honum að hann feti í fótspor Johns bróður síns og hjóði
sig fram sem forsetaefni Bandaríkjanna í komandi kosningum.
Hann nýtur í ríkum mæli vinsælda hinna látnu bræðra
sinna og þeirrar frægðar sem Kennedy-ættin nýtur þarna
vestan hafs.
Að vísu mun Rose, móðir Edwards, hafa tekið af honum
það loforð að gefa aldrei kost á sér sem forsetaefni, sökum
hinna hörmulegu morða bræðra hans. En nú mun Kennedy
hafa upplýst, að hann hafi fullt samþykki ættar sinnar til
slíkrar ákvörðunar, ef hann kjósi það.
Þegar þetta er skrifað hefur hann lýst ótvírætt vilja sín-
um i þessum efnum og það er ekkert leyndarmál að stuðings-
menn hans hafa unnið í heilt ár af fullum krafti að því að
undirbúa framboð hans og kosningu. En með þvi yrði hann
að bjóða flokksfélaga sínum, núverandi forseta, Jimmy Carter
byrginn.
Edward Kennedy nýtur virðingar sem öldungadeildarmað-
ur í bandaríska þinginu og hefur þar verið falin mikilvæg