Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Side 37

Morgunn - 01.06.1980, Side 37
UM BÆNINA 35 biðjið þessara bæna fyrir öðnim, þá tengist þið hærri sveiflu eða tíðni en þegar þið biðjið fyrir þörfum ykkar sjálfra, því að þá tengist þið hjálparsveitum andavera, sem starfa sérstaklega á þessum sviðum. Hinar mörgu hjálparsveitir andavera eru mjög misjafnlega langt komnar andlega, þroskalega séð. Leiðtogar þessara hjálparsveita hafa oft fórnað framförum með því að dvelja nálægt jörðinni, til að geta helgað sig hjálp við börn jarðar. Með þessum leiðtogum hjálparsveitanna eru aðrar andaver- ur langt komnar í þroskanum, sem endumýja sambönd sín við æðri heima öðru hvoru. Einnig tilheyra þessum hjálparsveit- um þeir sem þið kallið „nýlátna“, sem eru nýkomnir frá okk- ar jörðu og leitast við að halda áfram að starfa eins og á jörð- unni, við að lækna og að kenna. Hjálparsveitir þessar gefa frá sér mikla orku þegar þær eru í starfi. Þegar þið biðjið í ákveðnum tilgangi þá tengist hugsun ykk- ar einhverri þessara hjálparsveita. Hugsun ykkar er gripin og send áleiðis með viðbættri orku. Þannig sjáið þið að hugsanir ykkar öðrum til handa marg- faldast. Þannig munuð þið sjá að þið eruð ekki ein, þegar þið biðjið fyrir öðrum. Bæn er orkuathöfn. Bæn verður kraftur, þegar þannig er farið að. Þess vegna skuluð þið læra að biðja fyrir öðrum. Nú skulum við íhuga hvemig þið ættuð að fara að, hvort sem þið helgið ykkur ákveðna stund á degi hverjum i þeim tilgangi að senda frá ykkur hugsanir, hvert ykkar út af fyrir sig eða saman i bænahring tvisvar, þrisvar í viku. Bæn er einbeiting að ákveðnu efni, en það getur verið vanda- samt að öðlast rétta einbeitingu. Það getur tekið mörg ár fyrir emstakling að byggja upp og efla geisla frá honum til um- ræddra hjálparsveita í andaheimi. Þið ættuð að fastákveða þann tíma, sem ykkur hentar best. Snemma morguns hentar ykkur best til kyrrlátra stunda. Þá eruð þið fersk í anda og óþreytt. Við leggjum til að þið lesið ekki bænir ykkar í rúminu, heldur sitjandi í stól, þar sem

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.