Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Page 51

Morgunn - 01.06.1980, Page 51
BÆKUR 49 Hverjum sem kynnist slíku fólki, sem í sífellu notar sam- band sitt við annan heim til þess að verða meðbræðrum sínum til blessunar, hlýtur að ofbjóða sú vitneskja að til skuli vera íslenskt fólk sem heldur að þessar göfugu mann- eskjur séu í sambandi við einhverja djöfla eða illar verur. Ef það væri að brjóta lögmál guðs tækist þeim tæpast að hjálpa neinum. En reynslan sýnir allt annað. Engar mann- eskjur hverfa frá okkur af jarðsviðinu jafn umvafðar ástúð og þakklæti fjölda manns og hinir miklu græðar, sem oftast eru nefndir huglæknar. Una i Garði, sem lést 4. október 1978 nálega 84 ára að aldri var ekki ein um það. Þessi bók Gunnars M. Magnúss sem ber nafnið VÖLVA SUÐURNESJA (en svo nefndi Grétar Fells skáld hana) fjall- ar um Unu, og ef nokkurt lif hefur verið fagurt og öðrum til fyrirmyndar, þá var það líf hennar. Hún umvafði alla sem kynntust henni ástúð og kærleika með þeim hætti að það gleymdist aldrei viðkomanda. Og þá voru hinir ekki færri sem hún bjargaði undan sárustu þjáningum alvarlegra sjúk- dóma og jafnvel bana. Sálrænir hæfileikar þessarar göfugu konu voru með eins- dæmum merkilegir. Til dæmis virtist henni hafa verið það innan handar, eins og ekkert væri sjálfsagðara, að fara sál- förum og skyggnast um á sviðum viðsfjarri heimkynnum sínum og dvalarstað, ef á lá. Þannig hvarf hún eitt sinn um borð í veiðiskip fyrir norðan land, sem stjórnað var af manni úr átthögum hennar á Suðurnesjum og vandamenn heima voru farnir að hafa nokkrar áhyggjur af. Skip þetta hafði hún aldrei séð, en lýsti því hins vegar greinilega i einstök- um atriðum og því sem var að gerast um borð, þegar hún fór þangað sálförum. Hún gat veitt vandamönnum áreiðan- legar upplýsingar um veiðiskapinn og að allt væri í góðu lagi, og allt reyndist þetta vera i fullu samræmi við sann reyndir, þegar það eftir á var borið saman við raunveru- leikann. öðru sinni var hún spurð um ungan mann þama úr átt- 4

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.