Morgunn


Morgunn - 01.06.1980, Side 72

Morgunn - 01.06.1980, Side 72
70 MORGUNTí ÞJÖÐTRÚ OG ÞJÓÐSAGNIR. Oddur Björnsson safnaði. Jónas Jónasson bjó undir prentun. Steindór Steindórsson frá Hlöðum annaðist útgáfuna 1977. ÍJtgef.: Bókaforlag Odds Björnssonar, Akureyri. Þegar maður leiðir hugann að hinu mikla og merkilega magni íslenskra þjóðsagna, sem út hafa komið á Islandi, er ekki hægt að komast hjá því að fyllast aðdáun og þakklæti til hinna óeigingjömu manna, sem árum saman hafa eytt dýrmætum tíma til þess að safna þessum fróðleik og með því veitt okkur löndum sínum ómældar ánægjustundir, jafnframt því að hér hefur verið lagt af mörkum verulegt framlag til íslenskrar menningar. Hér er ekki um að ræða skemmtiefni eitt, heldur hljóta þjóðsögur og skyldur fróðleikur að ýmsu leyti að endurspegla viðhorf og hugsunarhátt þeirrar þjóð- ar, sem skapar þær. Þótt margt sé bamalegt og grimmt hugs- að, er annað háleitt og djúphugsað, enda hafa þjóðsögumar hvarvetna orðið miklum skáldum yrkisefni og ótæmandi upp- sprettulind nýrra og ferskra hugmynda. Menningarlega skipta þessi ritverk mjög miklu máli, því þau hafa fengið sérstakan blæ hjá hverri þjóð fyrir sig. Og þessi mismunandi blær sem þjóðtrú og þjóðsiðir, þjóðsagnir og ævintýri hafa fengið hefur breyst og lagast með ýmsum hætti eftir þjóð- eminu oy þeim skilyrðum sem hver þjóð hefur átt við að búa. Þegar þjóðin á við bág kjör að berjast verður þjóðtrú hennar og þjóðsagnir með ömurlegum blæ, eða þá hún skapar sér glæsilega töfraheima þar sem fólkið fær svalað sér í gnótt allsnægtar þeirra og fegurðar, sem hana skortir svo tilfinn- anlega í köldum raunvemleikanum. Þegar þjóðin lifir í kúg- un og við harðrétti, verður þjóðtrúin myrk og döpur, sagn- imar svartar og sorglegar og það sem Ijótt er og djöfullegt skýtur upp kollinum og vonskan og ranglætið fá yfirhönd.

x

Morgunn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.