Morgunn


Morgunn - 01.12.1982, Page 6

Morgunn - 01.12.1982, Page 6
108 MORGUNN Meðan á þinginu stóð var stofnað til umrœðna meðal nokkurra hinna frœgustu lífeðlisfrceðinga. Blaðamaður Morgunblaðsins, Hjálmar Jónsson, lagði spurningar fyrir kappana, en honum til ráðgjafar var, auk dr. Jóhanns, Guðrún Pétursdóttir, lífeðlisfrœðingur. Guðrún var í und- irbúningsnefnd ráðstefnunnar. Samrœður lífeðlisfrœðinganna voru einstaklega fróðleg- ar og tel ég mikinn feng að fá leyfi hlutaðeigandi t.il að birta þœr hér í Morgni. Lífeðlisfrœðin er merkust frœði- greina að minum dómi, frá sjónarmiði þeirra, sem velta fyrir sér „lífinu og tilverunni“'. Mér er mikil ánœgja að fá að birta frásögn Sr. Jóns Ólafssonar frá Holti í önundarfirði, en Guðlaug Eltsa Kristinsdóttir kynnir Sr. Jón í inngangi að erindi hans. Nýlega var á ferðinni góður gestur hjá Sálarrannsókna- félagi íslands, Harry Oldfield að nafni, og sýndi hann ýmsar tœknilegar nýjungar við sjúkdómsgreiningar. Geir R. Tómasson, tannlœknir, varaforseti Sálarrannsóknafé- lagsins, greinir frá tœkjum þessum, og skyldum efnum, í grein sinni. 1 hefti þessu er ennfremur lausleg þýðing á upphafi bókar eftir indverskan sannleiksleitanda, frétt um 15 ára afmœli Sálarrannsóknafélagsins í Hafnarfirði og greina- syrpa úr heimi visindanna eins og í fyrri heftum. Auk ritstjórarábbs reka svo að venju lestina fréttir frá Sálarrannsóknafélögunum. Ég þakka riturum félaganna fréttabréfin. Gef ég nú öðrum orðið og óska lesendum a/ls góðs á nýju ári. i

x

Morgunn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunn
https://timarit.is/publication/668

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.